Thatcher - Jóhanna (ekki af Örk)

Hvernig væri að þjóðin fengi að kjósa um hvort að hún vill yfirhöfuð nokkrar aðildarviðræður að ESB. En það er bara þannig að þjóðaratkvæðagreiðsla er ekki í anda Samfylkingar eða VG. Þetta er hreinn og klár viðbjóður þessi framkoma Jóhönnu.

 Hún er ekki lengur "heilög Jóhanna", hún er "Thatcher Jóhanna", er með einræðistilburði með Steingrím í eftirdragi sem að reynir aðeins að malda í móinn með því að segjast frekar vilja tala við Norðmenn. Ætli Jóhanna hlusti nú mikið á það. Hótar þá bara stjórnarslitum.

Svo er þetta nú meira ruglið að Icesave-deilan við Breta og Hollendinga muni ekki hindra ESB aðild Íslands. Auðvitað mun hún gera það. En svona lygar eiga ekki lengur við í þessu máli. Það er komið nóg af þeim. Ég vil enga ESB aðild algerlega óháð þrýstingi frá AGS eða öðrum. Sú aðild myndi kosta okkar miklar fórnir i auðlindum Íslands, það sér hver heilvita maður.

Þessi ríksstjórn er með þeim ótrúlegustu í Íslandssögunni.

Já oft reynist flagð undir fögru skinni ef fagurt skinn skyldi kalllast. Þetta er hreinn og klár viðbjóður þar sem að verið er að koma aftan að lítilli þjóð, hún á að borga Icesavereikninga og skúrkarnir eiga að sleppa.


mbl.is Aðildarviðræður taki 1-2 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þórkatla þetta er þjóðarsálin í dag við skulum nýta okkur kraftinn sem við höfum til að verjast þessari ógnarstjórn sem tröllríður öllu hér á íslandi með það eitt markmið að verja þjófana icesave og beina leið til ESB helvítis.

Sigurður Haraldsson, 6.2.2010 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 62798

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband