Ógleði, ælur og meiri uppköst.

Jóhanna ætlar að hafa utanflokksmennina Gylfa Magnússon og Rögnu Árnadóttur með í þeirri ríkisstjórn,sem að nú er búið að mynda. Þar sem að ráðherraræði er mjög mikið á Íslandi skiptir þetta mjög miklu máli.

Ég hefði því viljað vita þetta, áður en ég gekk til kosninga. Það skiptir í raun engu máli hverjir sitja á þingi, heldur þeir sem að sitja á ráðherrastólum. Hvernig hefur Gylfi Magnúson talað við íslenska þjóð síðustu vikurnar?

Framkvæmdarvaldið tekur löggjafarvaldið yfir í flestum málefnum, sem að koma til afgreiðslu þingsins. Þingmannafrumvörpum er hiklaust hent út af borðinu, ef að álíka ráðherrafrumvarp er innan seilingar. Þetta er nú allt lýðræðið.

 Í þessum skrifuðum orðum er Jóhanna Vigdís á Ríkissjónvarpinu að lesa upp útdrátt úr stjórnarsáttmála verðandi ríkisstjórnarinnar. Jóhanna Sig. og Steingrímur eru nú að ganga í salinn............ mér verður óglatt.

 Talað er nú um þjóðarsamstöðu og stöðugleika, þetta á að taka nokkur ár. Fyrst einhver 100 daga áætlun.... er þetta fólk ekki í sambandi? Höfðu þau ekki tækifæri í 80 daga til að gera eitthvað af viti? Enn og aftur plástur á blæðandi magasár.

Steingrímur segir nú, að nú sé í fyrsta skipti orðin til fyrsta hreina Vinstri græna rikisstjórnin, hva er Samfylkingin ekki með?

Og núna segir Steingrímur að ESB skipti engu máli, en Jóhanna segir allt annað. Viðræður í síðasta lagi í júli. Fjölgun á ráðuneytum, en svo á að fækka þeim á næstunni. Var einhver að tala um valdafíkn?

p.s. Ásta Ragnheiður fékk sína sporslu........forseti Alþingis. Nú kasta ég upp.


mbl.is Óbreytt stjórnskipan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Óttalegt heilsuleysi er þetta! Þarftu ekki að fara til læknis?

Björn Birgisson, 10.5.2009 kl. 16:26

2 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Ógleðin líður hjá...þú verður stálslegin á morgun.

kv

Eyjólfur Sturlaugsson, 10.5.2009 kl. 16:36

3 identicon

Mjög málefnalegt hjá þér Björn. Ert þú í þeirri stöðu að vera búinn að missa vinnuna, íbúðin þín eða húsið er komið á nauðungaruppboð og þú átt varla fyrir mat handa fjölskyldunni?

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 16:37

4 identicon

Björn og Eyjólfur, ég vildi óska þess að ríkisstjórnin hefði eins mikinn áhuga á mínu heilsufari og þið.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 16:39

5 Smámynd: Björn Birgisson

Þórkatla, hver veit nema hún hafi það. Er þetta ekki velferðarstjórn í norrænum anda?

Björn Birgisson, 10.5.2009 kl. 17:07

6 identicon

Björn við skulum vona að þetta sé velferðarstjór, alveg sammála þér. Ekki veitir þjóðinni og þar á meðal mér af, umhyggju fyrir heilsufari hennar/mínu.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 18:37

7 identicon

Þetta átti að vera velferðarstjórn, af einhverjum ástæðum hnaut ég um þetta orð. Það er skítt að þurfa að venjast endalaust spillingum og svikum.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 62807

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband