Ævintýri ei gerast

Ég var ein af þeim sem að var alveg feikilega bjartsýn í búsáhaldabyltingunni svokölluðu. Nú væru nýir tímar, fólk mótmælti og nú skildu verða breytingar á stjórnarháttum hér.

En hvað skal segja? Er eitthvað að gerast? Ekkert svo ég viti til, en samt var hamrað á því í byltingunni að auka þyrfti upplýsingastreymi til almennings. Hefur það eitthvað breyst?

Um hvað skal kosið í apríl næstkomandi? Mér sýnist á öllu að fólk vilji óbreytt ástand, eina breytingin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn mun að öllum líkindum ekki verða við völd, en hvað veit maður?

Við erum villuráfandi þjóð í eyðimörkinni í leit að hálmstrái til að lifa af. Á meðan fara margir í spakmannsspjarir og eru með lausnirnar á takteinum sem að reynast ansi haldlausar þegar á reynir.

Sérstakur saksóknari og Eva Joly koma tímabundið eins og frelsarar fyrir þessa þjóð en hvar eru þau nú?

Maður spyr sig í forundran: Er fjórflokkakerfið virkilega framtíðin eftir allt sem á undan er gengið? Ja, ég bara spyr.

Í frægu dægurlagi hljómaði laglínan: Ævintýrin enn gerast. Nei því miður, ævintýrið er á enda.


mbl.is Samfylking og VG með samtals 55,8% - 38 þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband