Hvar er stjórnarandstaðan? Fyrir hvað stendur eiginlega Borgarahreyfingin?

Menn afhjúpa sig mismunandi snemma. Borgarahreyfingin afhjúpaði sig á fyrsta degi og tók afstöðu með stjórninni og veikir stjórnarandstöðuna til muna. Var þetta ekki akkúrat þetta sem að við þurftum á að halda?

Gagnrýnir Borgara-hreyfinguna harðlega

Tryggvi segir að Borgahreyfingin hafi skipt á lýðræði og völdum.

Tryggvi segir að Borgahreyfingin hafi skipt á lýðræði og völdum. Mynd DV.

Föstudagur 15. maí 2009 kl 20:15

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir vinnubrögð Borgarahreyfingarinnar harðlega í nýrri bloggfærslu. Borgarahreyfingin bauð fram með meirihlutanum þegar kosið var í fastanefndir þingsins í dag.

Bornir voru upp tveir listar, listar A og B. Þingmenn Borgarahreyfingarinnar mynduðu lista A með þingmönnum Samfylkingar og Vinstri grænna en þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks mynduðu saman B lista.

„Einhverjum kanna að finnast það bráðgóð hugmynd að Borgarhreyfingin hafi gengið til liðs við stjórnarflokkana í kjöri um nefndarsetur á Alþingi. Þessi ákvörðun hópsins leiðir til þess að stjórnarandstaðan fær fimm færri nefndarsæti en ella og þar með veikist stjórnarandstaðan sem því nemur í aðhaldi sínu við valdhafana,“ segir Tryggvi.

„Það er rétt að óska Borgarahreyfingunni til hamingju með niðurstöðu þessarar fyrstu atkvæðagreiðslu hópsins á Alþingi – þau skiptu á lýðræði og völdum!,“ segir Tryggvi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef einhver er tækisfærissinnaður egóisti af embættismönnum þá er það TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON,Kúlulánatakari og fyrrum ráðgjafi Geirs Haarde,og klúðraði öllu sem hægt var að gera,hann laug að þjóðinni með þessum Geir Haarde.Nóg að líta í augu þessa manns og lesa þar út að um MJÖG varasaman mann er að ræða. TRYGGVI ÞÓR veit ekki hvað lýðræði er.Tryggvi Þór Herbertsson,Illugi Gunnarsson , Finnur Ingólfsson og Árni Johnsen, eiga  margt sameiginlegt.==TÆKISFÆRISSINNAR.==

Númi (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 62846

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband