Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Frændþjóðavinir í raun, innistæður og fl.

Það er gleðiefni að Norðmenn ætli að snúa frá villu síns vegar og vera frændþjóðarvinir í raun. En hvers vegna gera hinar Norðurlandaþjóðirnar ekki slíkt hið sama? Finnar hafa nú bæst í vinahóp okkar í þessu samhengi en Danir og Svíar eru enn andvíg okkur í þessu máli og lætur AGS ráðskast með okkur.

 Já mér er spurn. Hvaða óskaplegt ægivald hefur þessi sjóður eiginlega? Hann getur komið í veg fyrir að aðrar þjóðir veiti okkur lánafyrirgreiðslu. Þetta er fjárhagsleg kúgun gagnvart lítilli þjóð sem að Bretar og Hollendingar hafa kallað yfir okkur.

Og það sem meira er, allar kröfur til innistæðueiganda hafa verið greiddar út að fullu en útrásarvíkingarnir skulda bresku og hollensku ríkjunum gífurlegar fjárhæðir. Þeim ber að borga þessum ríkjum þessar fjárhæðir sjálfir en ekki við almenningur. Bankarnir voru í einkaeigu þegar þessir ómerkingar kölluðu þetta yfir okkur.

Á ég ekki bara að borga þínar skuldir Jón Jónsson?  Af hverju eigum við að borga skuldir annarra manna. Ég er kannski treg en ég skil ekki svona þankagang. Til að kóróna vitleysuna þá situr Jón Ásgeir í einni af skilanefndum bankanna og aðrir ganga lausir.

 Mál Björgólfs Thors er nú kapitúli út af fyrir sig, myndi hvergi viðgangast í nokkru siðmenntuðu ríki.

En Norðmenn og Finnar eiga heiður skilið.


mbl.is Norðmenn breyta um Icesave-stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blekkingarnar afhjúpast hver af annarri.

Þær blekkingar sem að íslensk stjórnvöld hafa viðhaft gagnvart íslensku þjóðinni í Iceasavemálinu,eru vítaverðar að mínu mati. Reyna að keyra fram málið á blekkingum og síðan mátti þjóðin helst sem minnst fá að vita um málið. Þetta er valdníðsla af verstu sort.

Nú kemur í ljós að Norðmenn og Finnar eru okkur hliðhollar, jafnvel fleiri þjóðir hvað veit maður. Þessi ríkisstjórn hefur ekkert reynt að vinna sér fylgi utanlands og segir okkur síðan bara að borga. Kannski að þú farir að tala við annað fólk Jóhanna mín.


mbl.is Finnar hliðhollir Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins virðist eitthvað vera að breytast.

Ekki er ég stuðningsmaður Hreyfingarinnar en er ánægð með þá yfirlýsingu sem að Þór Saari kemur hér fram með. Orð í tíma töluð.
mbl.is Nota AGS sem vopn gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja búsáhaldabyltingu, takk!

Fyrir hverju var barist í búsáhaldabyltingunni, átti ekki að berjast fyrir réttindum þeirra sem að minnst mættu sín?

Sjálfstæðisflokknum var bölvað en er núverandi ríkisstjórn að gera nokkuð betur í þágu öryrkja? Það er með ólíkindum að fólk í þessu landi ætli að sætta sig við að að borga skuldir óreiðumanna og útrásarpakks og láta öryrkja, láglaunafólk og ellilífeyrisþega borga brúsann!


mbl.is Öryrkjar mótmæla „nýrri aðför“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna og lítilmagninn!

Það er með hreinum ólíkindum að það eigi að skerða kjör öryrkja, vegna tekna. Ég á son sem að er öryrki. Ekki er það há fjárhæð. Ef að við héldum ekki heimili saman hefði hann hvorki í sig né á nema húsaleigu og brýnustu nauðsynjar. Sjálf er ég á atvinnuleysisbótum, þannig að ekki getur maður leyft sér mikið.

Fólkið sem ræður för með milljón á mánuði getur hins vegar leyft sér ýmislegt, svo maður tali nú ekki um öll fríðindin. Jóhanna virðist vera búin að gleyma litla manninum ef svo má að orði komast, hún á að skammast sín!


mbl.is ÖBÍ mótmælir kjaraskerðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnir í gerbreytt aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu.

Barack Obama heldur sínu striki í fyrirætlunum sínum í að gerbreyta aðgengi almennings í Bandaríkjunum til hins betra í heilbrigðiskerfinu.  Hingað til hefur þetta verið hinum óbreytta Bandaríkjamanni ofviða vegna kosntaðar. Ekki má gleyma því að Obama er af alþýðufólki kominn og berst fyrir réttindum þeirra fyrst og fremst,
mbl.is Obama heldur sínu striki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingólfshryllingur hinn nýi?

Ég man þá tíð þegar að manni fannst gaman og fjölskylduvænt að koma á Ingólfstorg.  Þamgað fórum við oft mæðginin hérna "i den" og höfðum það kósí.

Breytingin sem var gerð á því fyrir nokkrum árum siðan var þvílíkur  hryllingur að ég hef forðast að bregða fæti mínu þar í langan tíma. En vonandi er betri tíð í vændum. En hvað skyldi þetta hafa kostað borgarbúa? Sem betur fer er ég ekki Reykvíkingur og þarf ekki að borga ósköpun.


mbl.is Hætt við óvinsælar framkvæmdir við Ingólfstorg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitt mannslíf öðru mikilvægara?

Hvað farast mörg börn í heiminum úr drepsóttum og hungri á hverjum sólarhring og enginn segir neitt og fjölmiðlar ganga ekki af göflunum út af því? Fleiri þúsund börn og fullorðnir, já á hverjum sólarhring. Söfnunarátök koma reglulega upp en duga skammt eins og dæmin sanna.

Lítum til Íslands: Hvernig væri að ríkið styrkti Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstofnun kirkjunnar, Fjölskylduhjálpina og fleiri sjálfboðaliðasamtök úr því að við erum svona vel aflögufær. Maður líttu þér nær. Fólk sveltur í þessu "velsældarsamfélagi" Jóhönnu Sig.


mbl.is Óttast að hálf milljón hafi farist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notaðu peningana til að stofna skóla fyrir fólk með geðraskanir!

Jæja Katrín Jak. hvernig væri að spara aðeins i ríkissjóði og taka þessa menn út af launum? Gæti það ekki sparað umtalsvert og um leið notað peningana til að stofna skóla fyrir fólk með geðraskanir? Já hvernig væri það Katrín mín? Þeim peningum er nefnilega vel varið því að þeir skila sér aftur til samfélagsins með bættum starfskröftum þeirra sem að þeirra fá að njóta.
mbl.is Óskýrar reglur um laun stórmeistara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sally Magnusson og "þjóðaratkvæðagreiðsla".

Það er svolítð skrítð að ekki skuli vera tekið mark á orðum Sally Magnusson, þar sem að hún bendir á hvað miklu máli það skipti Íslendinga að vaxtaprósenta af Icesaveláninu sé lækkuð um um 2-3 %. Alveg með ólíkindum þegar tillit er tekið til þess hve þekkt þessi manneskja er og málum vel kunnug.

Svo að maður víki nú að því að það stendur aldrei til að við Íslendingar fái nokkurn tíma tækifæri til að greiða atkvæðagreiðslu um eitt né neitt. Það  er alveg sama hvaða flokkar eru við völd. Þjóðin á aldrei að fá að ráða einu né neinu.


mbl.is Ávítuð fyrir stuðning við Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 62840

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband