Er klofningur um ESB eður ei? Steingrímur J. já eða nei!

Ég fagna því að Jóhanna tekur af skarið í sambandi við ESB aðild og segir okkur kjósendum nákvæmlega hvernig þetta horfir við henni. Að bíða í 4 ár eftir fullri ESB aðild og fá evru sem gjaldmiðil er ansi langur tími, en nú á þessum tímum, skiptir máli að sýna að við ætlum að vera með. Aftur á móti hef ég ekki heyrt annað en að Steingrímur J. sé alfarið á móti aðildaviðræðum og aðild að ESB.

Hvernig á þetta eiginlega að fara saman? Hefur hans afstaða eitthvað breyst? Ekki hef ég orðið vör við það. Við, kjósendur eigum rétt á að vita ef að einhver sinnaskipti hafa orðið hjá Steingrími J. Ég vil fá að heyra þetta frá hans eigin brjósti en ekki í gegnum Jóhönnu Sigurðardóttur. Þetta virkar ekki þegar að 5 dagar eru til kosninga.


mbl.is ESB-viðræður í júní?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála þér Þórkatla.

Auglýsi eftir skýrum skilaboðum hér. Ég vil geta treyst því að sá flokkur sem ég kýs muni sannanlega leiða okkur inn í ESB og lúta ekki í lægra haldi fyrir duttlungum smærri flokka sem engin svör hafa.

Sigmar S. (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 14:55

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég er sammála ykkur Þórkötlu og Sigmari, en með öfugum formerkjum þó.  Ég vil heyra nákvæmlega hversu mikið VG eru tilbúnir að gefa Samfylkinguni eftir í þessu máli áður en ég ákveð hvað ég kýs.

(Samfylkingin og Framsókn koma ekki til greina hjá mér)

Axel Þór Kolbeinsson, 20.4.2009 kl. 15:18

3 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Þau ætla sér greinilega að komast framyfir kosningar á gráa svæðinu og svara engu nógu skýrt.

Carl Jóhann Granz, 20.4.2009 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband