Þeir skulda þjóðinni svör. Evrópa, já eða nei?!

 Mér sýnist á öllu að ESB aðildin sé orðin að einhverju leynimakki milli núverandi stjórnarflokka. Samkvæmt þeirri grein sem að fylgir hér á eftir bendir allt til þess að ríkisstjórnin sé búin að ná einhverri lendingu  í Evrópumálunum án þess að við kjósendur fáum að vita það.

 Hvað nær leynimakkið langt? Hvernig eiga kjósendur að taka afstöðu, án þess að fá nákvæmar upplýsingar um stöðu mála? Mér finnst þetta móðgun við kjósendur. Þeir sem að ætlast til að fá nægilegt atkvæðamagn til áframhaldandi stjórnarsamstarfs, skulda þjóðinni svör.

Vísir, 20. apr. 2009 22:42

Evrópumálin gætu valdið stjórnarkreppu

mynd
Gunnar Helgi segir margt líta út fyrir að forystumenn stjórnarflokkanna séu eitthvað farnir að ræða lendingu í Evrópumálum. Mynd/ GVA.

Jón Hákon Halldórsson skrifar:

Ekki er útilokað að ólík sjónarmið varðandi Evrópusambandsaðild geti valdið stjórnarkreppu að loknum kosningum að mati stjórnmálafræðiprófessors. „Já, já, það er auðvitað alls ekki hægt að útiloka það," segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands, þegar fréttastofa spyr hann um málið.

Björgvin G. Sigurðsson sagði á opnum borgarafundi í kvöld að hann útilokaði samstarf með Vinstri grænum eftir kosningar nema að Evrópumálin væru til lykta leidd. Árni Páll Árnason, flokksbróðir Björgvins, sagði á Stöð 2 að Samfylkingin myndi leggja höfuðáherslu á Evrópusambandsaðild í stjórnarmyndunarviðræðum að loknum kosningum. Katrín Jakobsdóttir sagði hins vegar að enginn gæti sett fram ófrávíkjanlega kröfu í stjórnarmyndunarviðræðum.

Gunnar Helgi segir þó augljóst að forystumenn stjórnarflokkanna forðist að deila harkalega um þetta mál. „Þetta lítur svolítið út eins og þau hafi talað eitthvað um þetta og hafi einhverja hugmynd um hvernig þau ætli að taka á þessu," segir Gunnar Helgi. Hann bendir á að forsætisráðherra sé mjög aflöppuð gagnvart þessu máli og útiloki engar leiðir. Þá séu VG ekki búnir að útiloka á tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu og þarna sé töluvert svigrúm fyrir samninga. Gunnar Helgi segir þó að það sé mjög óvarlegt í þessari stöðu að storka samstarfsaðila með einhverjum ummælum. Hann bendir á að Evrópumálin séu flókin, sama um hvaða flokka ræði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 62851

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband