6.5.2009 | 09:14
Atvinnuleysisbætur og peningar í skattaskjólum.
Hvernig á að lifa á 150 000 kr. á mánuði? Ekki veit ég það. Eða hreinlega, það er ekki hægt að lifa á þessu. Af þessum 150 000 kr. eru borgaðir skattar. Þar sem að atvinnuleysisbætur eru í formi dagpeninga, getur brúttóupphæðin breyst verulega, allt eftir því hvort að það eru 28, 30 eða 31 dagar í mánuðinum. Hvers vegna er ekki hægt að hafa ákveðna grunnupphæð sem að gengið er út frá?
Dagpeningar eru 6900 kr. fyrir hvern virkan dag mánaðarins en ekkert fyrir helgardaga.
Það vantar peninga í ríkiskassann. Í fyrradag kom fram í fréttum að Barack Obama ætlar að skera upp herör gegn skattaundanskotum og setja mjög skilvirkt eftirlit með skattaundanskotum. Fylgst verður grannt með færslu fjármagns til skattaskjóla.
Hvers vegna er þetta ekki hægt hér? Hvað ætli það séu margar milljónirnar eða milljarðarnir sem að hafa tapast vegna skattaundanskota til Tortola og Caymaneyja? Myndi ríkiskassanum ekki muna um að fá þessar upphæðir? En það er eins og venjulega hér á Íslandi, glæponarnir eiga að fá frítt spil.
Háar fjárhæðir gætu sparast með eftirliti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Stjórnmál, lífsmáti, heilsa
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
"Spilling er ekki til nema þar sem hún er leyfð," sagði einhver.
Þannig er vel "hægt" hér að krefja þjófana um að skila fengnum - virðist bara enginn einasti vilji til þess. Svo getur maður spurt sig hvers vegna það sé?
Þegar bankaræningjarnir okkar standa fyrir á 90% af heildarumfangi bankagjaldþrota í Evrópu í fyrra.
Endurtek þessa tölu: 90%!
Hrikalega verður mér óglatt að eiga að borga þetta fyrir þá!
Ég get bara ekki kyngt því - en stjórnvöld eru víst búin að ákveða að það sé þægilegra að innheimta þetta hjá mér. Og þér.
Þórdís Bachmann, 6.5.2009 kl. 11:01
Þórdís, þessi tala sem að þú nefnir að 90% bankagjaldþrota eru vegna bankaræningjanna okkar, er óhugguleg tala. Menn sem að hreinsuðu bankana innan frá og stungu peningunum beint í eigin vasa.. Já, hvers vegna skyldi vera þægilegra að innheimta það hjá okkur,"fólkinu í landinu"?
Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 11:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.