12.8.2009 | 00:21
Kaffisamsæti forréttindastéttar og nauðsynjar almennings.
Flokksgæðingamálin eru söm við sig, það breytist ekkert, en talandi um kaffisamsæti þá er ég að velta fyrir mér hvernig þeim sem að hafa þurft að leita til Fjölskylduhjálpar og Mæðrastyrksnefndar síðustu mánuði hafi reitt af síðustu vikurnar.
Þessir hjáparaðilar fólks sem að stjórnvöld þessa lands, m.a. hin "góðhjartaða" Jóhanna Sigurðardóttir hafa ekki séð nokkra ástæðu til að veita fjárhagslegan stuðning, eiga mikið hrós skilið. Þarna er unnið mikið og óeigingjarnt starf. Lokað hefur verið hjá Fjölskylduhjálpinni og Mæðrastyrksnefnd síðan í lok júní.
Allt starfið þarna unnið í sjálfboðavinnu. Fólk þarf jú sitt sumarfrí. Það verður opnað aftur á morgun, (eða í dag miðvikudag). Skyldi ekki allt verða fullt út úr dyrum...........?
Síðan er það umhugsunarefni út af fyrir sig að í þjóðfélagi 21. aldarinnar á Íslandi árið 2009, skuli vera þannig búið að fólki að fólk skuli ekki hafa í sig og á.
Svona er búið að láglaunastéttum þessa lands í dag og svo eigum við að taka á okkur Icesavebyrðarnar í þokkabót.
Kaffisamsæti flokksgæðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Stjórnmál, lífsmáti, heilsa
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.