Icesave, sipp og hoj og úrræði KatrínarJakobsdóttur

Alveg merkilegt að hlusta á Katrínu Jakobsdóttur nú áðan að vera að tala um að ríkisstjórnin "sæi nú til lands" með Icesavemálið og "sæu nú sömuleiðis til lands" með afkomu bankanna. Nú væri sko kominn tími til að styðja við fjölskyldur í þessu landi.

Þúsundir manna hér á landi eiga ekki fyrir mat. Viðkomandi þarf að leita til hjálparstofnana. Ekki er ég að gera lítið úr þeirri starfsemi sem að er stórkostleg. En fyrir hvað erum við að borga með sköttunum okkar?

Það á hver einstaklingur fæddur hér á byggðu bóli rétt á því að hafa i sig og á, geta haft fyrir sínum mat og borgað prívat og persónulega.

En ríkisstjórnin er of upptekin við að bjarga fjárglæfra - og glæpamönnum.

Margar fjölskyldur gátu ekki borgað fyrir námsbækur og stílabækur barna sinna í dag.

Hvað ætlar þú að gera í þessu Katrín mín?

Einhverntímann fór maður í sipp og hoj, kíló og yfir eftir góðan skóladag. Hvað gera skólabörn í dag  --- gráta?


mbl.is Orðalag fremur en stór ágreiningsefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 62851

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband