Greiðsluverkfall, kaffiþamb og matarþurrð.

Það sér hver maður held ég, að þegar fólk er farið að íhuga greiðsluverkfall, þá er fokið í flest skjól. Maður þarf nú ekki annað en hafa hlustað á fréttir undanfarinna vikna og mánuða um fólk í greiðsluerfiðleikum.

 Ástandið fer versnandi, bæði vegna þess að margar fjölskyldur eru komnar í þrot með sinn varaforða, þær sem að hafa haft hann á annað borð og einnig það að nú fyrir alvöru eru kröfur bankanna komnar frá innheimtustigi bankanna til lögfræðinnheimtu.

 Aðvörunum frá bönkunum og fjárnámskröfum fer fjölgandi. Á meðan ætlar "ríkisstjórnin" okkar að eyða viku í viðbót í viðræður um meirihlutasamstarf ásamt viðeigandi kaffiþambi. Ég hélt að þessi flokkar hefðu þekkst ágætlega fyrirfram, störfuðu í minnihlutastjórn saman í rúma 80 daga fyrir kosningar.

Hvað hefði verið sagt ef að Barack Obama Bandaríkjaforseti hefði setið með hendur í skauti 100 daga eftir kosningar? Ætli skammartónninn hefði ekki heyrst víða? Til þess kom auðvitað ekki af þvi að þetta er maður sem að lætur verkin tala. Eitthvað annað en hér á Fróni, ekkert gert.

Annað mál þessu tengt, þeim fer fjölgandi sem að eiga ekki fyrir mat. Tölur frá Fjölskylduhjálp og Mæðrastyrksnefnd segja allt sem að segja þarf. Fólk má ekki skella skollaeyrum við svona fréttum. Það er grafalvarlegt mál að fólk eigi ekki fyrir mat í þessu "nútímasamfélagi" 21. aldar hér á Íslandi. Fólk á að fá að halda sinni reisn, það er lágmarkið.

Jafnframt finnst mér persónulega engin lítillækkun í því fólgna að þurfa að leita sér matar til áðurnefndra stofnana. Þetta er ekki fólkið sem að setti Ísland á hausinn.

Ég hef reynt það á eigin skinni hvernig það er að eiga ekki fyrir mat, vita ekki hvernig eigi að fjármagna næstu máltíð. Það er ekki góð tilfinning, það gefur að skilja.


mbl.is Margir íhuga greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lúskraðu bara á náunganum, það er allt í lagi!

Þarna eru 7 stúlkur á aldrinum 17-18 ára á móti einni 15 ára stúlku. Það er búið að segja það af lækni, að það hefði ekki mátt miklu muna að hún hefði hlotið varanlega örkumlun af eða jafnvel látist.

Eru þetta sem sagt skilaboðin. Þú getur lamið og lúskrað á fólki, haldið því í gíslingu, verið með hótanir, fjárkúgun og það er sem sagt allt í lagi.

Ef að þessi stúlka mun nokkurn tímann jafna sig fullkomlega þá verður það kraftaverk. Hún á sem betur fer góða fjölskyldu sem að mun styðja hana í gegnum þessi ósköp.

Ég vil senda stúlkunni og aðstandendum hennar mínar bestu kveðjur.


mbl.is Fá vægan dóm þrátt fyrir hrottalega líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lísa er lang...langbest í kvöld!

Idol stjörnuleit er mikil skemmtun í kvöld. Lísa fer hreinlega á kostum, það er unun að hlusta á þessa stúlku. Vona bara að hún vinni. Annars er dómnefndin í góðu skapi í kvöld, kurteis, ákveðin og hress. Hressustu mennirnir eru án nokkurs vafa Simmi og Jói. Eru hreinlega búnir að vera óborganlegir. Þetta er virkilega góð skemmtun fyrir forfallna söngvakeppnakonu.

Lýðræðishreyfingin eða eitthvað annað? Að þessu spyr mjög pólitísk manneskja.

Íslenskt þjóðfélag er vannært, vannært af þeim upplýsingum sem það á rétt á að fá að vita frá íslenskum stjórnvöldum.

Í dag, 1. maí er baráttudagur verkalýðsins. Mig langar að spyrja í einfeldni minni, fyrir hverju á að berjast? Vinstri flokkarnir eru búnir að sýna sitt rétta andlit.

Oft hefur það haft í flimtingum:"Það er allt betra en íhaldið." Ég held að ég kjósi bara Lýðræðishreyfinguna næst? Svei mér þá!


mbl.is „Kreppa nærð af græðgi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsbjargarviðleitni - 1. maí......?

Guð minn almáttugur hjálpi mér, er þetta nú orðin aðalvinnan hjá Atvinnumálastofun, að "fiska út" þá sem að eru að reyna að verða sér út um smá aukatekjur til að sjá fyrir sér og sínum. Einhverntímann hefði þetta verið kallað sjálfsbjargarviðleitni en þetta kallast greinilega eitthvað annað núna, 1. maí á baráttudegi verkalýðsins.
mbl.is Bæturnar misnotaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðbótin, traust og "svínaflensa"

Hver er förunautur okkar þessa dagana í verstu efnahagsþrenginum sem að þjóðin hefur gengið í gegnum?  Er það ekki Jóhanna Sigurðardóttir? Ekkert að gerast, nauðungaruppboð, uppsagnir og auðvitað því meira atvinnuleysi, króna sem er einskis virði, gjaldeyrishöft. Ég gæti haldið áfram endalaust, þið þekkið þetta allt, ef ekki á ykkar eigin skinni, þá frá vinum og venslafólki.

 Jóhanna talar um viku í viðbót í stjórnarmyndunarviðræður, það liggur ekkert á !? Hún talaði aðeins öðruvísi, nokkrum dögum fyrir kosningar.

Ég var í huganum að bera saman Barack Obama, sem er framkvæmdamaður, fylginn sjálfum sér, lætur verkin tala, fluggreindur, laus við allan hroka og yfirborðsmennsku, er mikill mannasættir og hins vegar Jóhönnu Sigurðardóttir .............?

Í fréttum RÚV í gærkvöldi, kom fram að eftir 100 daga á valdastóli í einni erfiðustu kreppu sem að Bandaríkin hafa staðið frammi fyrir, eru 70% Bandaríkjamanna ánægð með störf forseta síns. Þarf nokkuð frekara vitnanna við?

Einhverveginn hef ég það á tilfinningunni að hin svokalla svínaflensa, sem að kemur víst svínum afskaplega lítið við, sé ekki það sem að muni bitna verst á íslenskri þjóð. ( Tek fram að þá er ég ekki að gera lítið úr áhrifum "svínaflensunnar".)


mbl.is Fylgdarmaður Obama veiktist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einelti, ofbeldi, Flensborg og Setbergsskóli

Skilaboð til yfirmanna Flensborgarskóla: Hvernig væri að eftirlitið væri aðeins betra á vakt í sinni vinnu. "Maður tryggir ekki eftir á" segir í frægri auglýsingu á ljósvakamiðlunum. Ég á son sem að varð fyrir hrottalegu andlegu og líkamlegu einelti í Setbergsskóla í Hafnarfirði í samtals 7 ár.

Skólayfirvöld og þáverandi stjórn skólans hunsuðu allar mínar ábendingar, spurningar og símhringingar og einnig spurningar sálfræðings frá BUGL. Sögðu að þetta væri lygi í mér, þetta væri meira og minna syni mínum að kenna, hann væri nú ekki barnanna bestur!

Þeir sögðu að einelti hefði aldrei viðgengist í  þessum skóla! Ég má þakka fyrir að sonur minn er á lífi. Hann vildi ekki skipta um skóla, var viss um að eineltið myndi halda áfram þar. Það er líka mikið álag að skipta um skóla.

Einnig það, hvers vegna á fórnarlambið að þurfa að flýja, á ekki réttlætið gagnvart gerendunum að ná fram að ganga? Þetta fólk á að þurfa að svara fyrir gjörðir sínar ekki satt? Já, ég bara spyr?


mbl.is Litið alvarlegum augum í Flensborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna Sigurðardóttir fær eina og hálfa milljón nú um mánaðarmótin. Atvinnulausir fá ekki krónu fyrr en 4. maí.

Mér er nú efst í huga mánaðarmótin. Atvinnuleysisbætur verða ekki greiddar út fyrr en mánudaginn 4. maí. Hvursu margir eru orðnir peningalausir nú þegar, og þurfa að bíða til mánudagsins 4. maí næstkomandi, til að fá greiddar út bætur frá Vinnumálastofnun  Á hverju á atvinnulaust fólk, sem er nú um 18 000 talsins, að geta lifað á fram að þeim tíma?

Hvernig getur Jóhanna svarað því?  Ég býst við þvi að hún fái sín ráðherra- og þingmannalaun borguð út núna um mánaðarmótin, svona um eina og hálfa milljón króna, (forsætisráðherralaun plús þingmannalaun). 520 000 kr. þingmannastörf plús ráðherralaun um 800 000. kr. og að sjálfsögðu einhver nefndarstörf.

Já , hvar er hugsjónin?

Það liggur sem sagt ekkert á að mynda ríkisstjórn, alveg sama hvað gengur á i þessu þjóðfélagi ?


mbl.is Viðræðum haldið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndaaflausn Þráins? Ný krossfestingarsaga?

Samkvæmt bloggfærslu Þráins Bertelssonar á http://www.eyjan.is  í dag er það mikil áþján að vera ráðherra ásamt þingmannsstarfi. Hvers vegna er þá svona mikil eftirspurn eftir því?

Var þessi maður ekki að berjast gegn spillingu á Austurvelli forðum?

Svarið hjá Þráni er sem sagt: Ég vil ekki að aðrar séu spilltir, en ég má vera það. Bíddu ætlaði Borgarahreyfingin ekki að breyta einhverju?  Þeir afhjúpa sig rækilega hér, eru bara að skara eld að eigin köku.

Niðurlagið í bloggfærslunni minnir á krossfestingasögu fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnarFootinMouth:

"Fyrsta og gleggsta dæmið eru ráðherrar sem þiggja ráðherralaun ofan á óskert þingfararkaup þótt öllum megi ljóst vera að ráðherra vinnur ekki þingmannsstarfið af sömu natni og sá sem ekki þarf að gegna ráðherraembætti. ................Góðviljaðir aðilar hafa ráðlagt mér að kaupa mig undan þessari athygli með því að gefa andvirði heiðurslauna til einhvers líknarfélags en þeirri lausn hafna ég, enda þarf ég ekki að kaupa mér siðferðilega aflausn hafandi ekkert af mér brotið - annað en þiggja án umsóknar æðstu viðurkenningu sem íslenska þjóðin kann að veita listamönnum sínum.

Það sem miður góðviljaðir aðilar hafa rætt og ritað um þetta sýnir aðeins þeirra innræti en ekki mitt og er þar af leiðandi þeirra vandamál en ekki mitt.

Ég saup á því sem að mér var rétt og vissi ekki að svona mikið gall væri í kaleik þjóðarinnar og segi því eins og kerlingin forðum: 

Beiskur ertu, Drottinn minn."


Geir og Ísland í dag? Kvöldréttur og súludans.

Súludans var meðlæti Stöðvar 2 í kvöld.  Börnin fengu þarna huggulegan eftirrétt í kvöld eða þannig. Er virkilega í lagi að sýna þetta á besta útsendingartíma? Það er sem sagt alveg ömurlegt að vinna á Grund og það er ómerkilegt að hugsa um gamla fólkið, eftir því sem að Geiri gold segir. Hugguleg skilaboð eða hitt þó heldur. Að Geiri kallinn skuli hafa komist í Ísland í dag í kvöld og fengið að vaða elginn. Hvers vegna var ekki sagt að þátturinn væri ekki við hæfi barna?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband