Kolkrabbaleikurinn í íslensku þjóðfélagi. Bentu á þann sem að þér þykir bestur?

Það fylgir mannkyninu að vilja skipta sögunni niður í tímabil, tímabilunum síðan í enn annan undirflokk. Það er nokkuð langt síðan að bókin Kolkrabbinn var skrifuð. Olli hún miklu fjaðrafoki í íslensku samfélagi og sitt sýndist hverjum.

Það má segja að þetta hafi verið "tími Kolkrabbans" og einhvernveginn fékk maður það á tilfinninguna þá, (long time ago) að íslenskt þjóðfélag myndi breytast í kjölfarið.

Siðan tók "Davíðisminn" við. Ég man að ég, fyrir um 10-15 árum síðan, orðaði stundum manna á meðal, að ég væri eiginlega búin að fá nóg af þessarri aðdáun og dýrkun á Davíð. Þetta kynni ekki góðri lukku að stýra.  Viðbrögðin voru þannig að ég ákvað að nefna þetta ekki á nafn í langan tíma.

Síðan tók við tími útrásarvíkinga, allir "flottir" og stjórnvöld, bankarnir, forsetinn og Davíð "kóuðu" með.

Maður vill trúa því að tími útrásarvíkinga sé liðinn en ég er ekki svo viss um að svo sé. Maður vill líka trúa því að Davíðstíminn sé liðinn, en er það svo?

Á meðan að ekki fer fram gagnrýnin og gagnger endurskoðun og hreinsun á íslensku stjórnkerfi, þannig að engar leifar verði eftir af gömlu klíkunum, þá held ég að breytist fátt. Kannski á yfirborðinu en ekkert meira en það.

Við sjáum það á kjöri formanns Sjálfstæðisflokksins um helgina, þar sem  Kolbrabbinn er kominn í endurnýjun lífdaganna.

Við sjáum það líka á háttalagi Þórunnar Sveinbjarnardóttur í Kraganum sem að hótaði að fara út af lista Samfylkingarinnar ef að prófkjörsreglur yrðu ekki brotnar og henni fært 3. sætið á listanum á silfurfati.

Og maður sér það líka á svo mörgu öðru.........


Mengjadæmavandamál eða var það öfugt?

Eitthvað virðist Þorgerður hafa ruglast í ríminu í lok landsfundar hjá Sjálfstæðisflokknum nú í dag(nýendurkjörinn varaformaður). Virtist hún ekkert vita hvernig hún ætti að enda ræðuna, endurtók sig aftur og aftur með alveg furðulegum upphrópunum:"Við klárum þetta dæmi Bjarni. "

Ekki svo langt síðan að Ingibjörg Sólrún sagði að þjóðin væri "mengi" Hvernig væri nú að einhver tæki sig nú saman í andlitinu og leysti þetta mengjadæmavandamál eða er það kannski dæmamengjavand......?

Gott að heyra eða þannig. Þjóðin er á  hausnum, fólk á ekki fyrir mat og þau ætla sér sko "að klára þetta dæmi"! Endaði svo auðvitað sem fyrrverandi íþróttamálaráðherra:  Koma svo, áfram Ísland, berjast, berjast.........

Var þetta ekki örugglega landsfundur hjá stjórnmálaflokki?


mbl.is Þorgerður Katrín fékk 80,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert uppgjör í Sjálfstæðisflokknum.

Kristján Þór Júlíusson gerði mikil mistök með því að láta undan þrýstingi og gefa kost á sér til formanns. Sem þaulreyndur maður í pólitík átti hann að sjá að þetta var fyrirfram tapað. Engeyjarættin hefur enn það sterk ítök hér á landi.

Hann hefði átt að gefa Bjarna Ben. frítt spil að þessu sinni, en bjóða sig svo fram eftir 2 ár þegar óánægðir flokksmenn væru endanlega búnir að viðurkenna mistök sín í valdastjórn sinni í 18 ár. Þá hefði Kristján átt greiða leið í stöðu formanns flokksins.

 Á tveimur árum getur ýmislegt skeð og það er aldrei að vita nema að hann muni fá tækifæri þá. En þangað til  þarf hann að skoða bæði baklandið og fyrst og fremst uppgjörið við fortíðina. Ég er ekki Sjálfstæðismanneskja en tel að hann hefði reynst flokknum vel í þeim öldudal sem að hann er nú. Halelújakór er ekki sá kór sem að fólk samþykkir nú. Sjálfstæðisflokkurinn er nú sem endranær slíkur kór, þar hefur ekkert breyst.


mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Alzheimer "fyndinn" sjúkdómur?

Maður hélt að maður hefði séð það lægsta. En að mikla sjálfan sig á kostnað Alzheimersjúklinga, óska einhverjum þess að viðkomandi sé með Alzheimersjúkóm? Davíð Oddsson gerði þetta í ræðu sinnI um helgina á flokksþingi Sjálfstæðismanna og salurinn (flokksmenn) hló og fannst þetta afskaplega fyndið.

 Er sem sagt allt leyfilegt í pólitík? Sjálfstæðismönnum finnst Alzheimersjúkdómurinn annaðhvort feikilega "fyndinn" sjúkómur eða að þeim finnst nauðsynlegt að þjóna "húmornum" hans Davíðs.  


Söfnunarátak fyrir svöng börn.

Um 50 milljónir söfnuðust í söfnunarátaki Hjartaheilla á Stöð 2 núna um helgina til kaupa á hjartaþræðingartæki og mér skilst að söfnunin standi enn yfir. Ég spyr, hvers vegna sér heilbrigðisráðuneytið ekki um kaup á slíku tæki? 

Ég tel að það eitt og sér, að ef að sjúklingar þyrftu ekki að leita sér læknishjálpar erlendis, myndi  það spara ríkissjóði umtalsverðar fjárhæðir t.d. í vinnutapi og fleiru. Ég tala nú ekki um ferðakostnað.

 Hvar er söfnunarátakið fyrir heimilin í landinu, eða eru fjölmiðlarnir enn að "kóa" með ríkisvaldinu, núverandi og fyrrverandi og á hreinlega að þagga niður það ástand að þúsundir manna eigi ekki fyrir mat?

Ég óska hér með eftir því að Stöð 2 og/eða Ríkissjónvarpið standi að söfnunarátaki fyrir heimilin í landinu, svo að börnin fari ekki svöng að sofa.


mbl.is Hátt í 50 milljónir króna söfnuðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð (Jesú?!) .... að eilífu amen, eða hvað?

Jesú Kristur var krossfestur forðum daga. Hann var boðberi kærleikans og það kunnu misyndismenn þess tíma ekki að meta. Að sjálfsögðu skyldi ráða þann mann af dögum sem að taldi hamingju felast í kærleik og umhyggju fyrir náunganum, en ekki í eltingarleik eftir gullkálfinum. Hvað hefur breyst? Hvar eru farísear okkar tíma?

Undarlegt þegar að fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins líkir örlögum sínum við örlög Krists á krossinum. Þessi fyrrum formaður lofsöng útrásarvíkingana, sem að stálu bönkunum (peningum landsmanna) innan frá, í taumlausri grægði sinni og siðvillu. Fyrir þessum mönnum söng þessi fyrrv. formaður ferfalt húrra og hvatti aðra til að gera slíkt hið sama.

Í febrúar 2008 varaði hann stjórnvöld við í hvað stefndi í hagkerfi þessa lands, en birtist svo á á sjónvarpsstöð erlendis um mánuði seinna og sagði að "economy of Iceland is quite extraordinary good", sem sagt það væri allt í himnalagi á Íslandi. Hvernig er hægt að taka mark á þessum manni? Vil ég minna á hér að Davíð Oddsson var valinn versti seðlabankastjórin Evrópu, fyrir ekki svo mörgum vikum síðan, af virtu viðskiptatímariti.

Í ræðu sinni á flokksþingi Sjálfstæðisflokksins fer Davíð í gamalkunnar stellingar, hæðir og spottar menn, miklar sig á kostnað annarra. Þetta er gamalkunn aðferð þeirra sem að hafa engar málfefnalegar varnir. Það má segja að það hafi verið dapurlegt að hlusta á þennan mann, enn dapurlegra var að hlusta á klappliðið fyrir aftan, sem að reyndi að láta þetta allt saman líta vel út á ljósvakamiðlunum.


Búsáhaldabylting hvað?

Er þetta virkilega að gerast? Þjóðin er að fara í kosningar eftir tæpan mánuð og núverandi stjórnarflokkar fengju meirihluta á Alþingi ef að kosið væri nú. Dag eftir dag heyrum við tölur af stigvaxandi fjölda fólks sem að á ekki fyrir mat og þarf að leita á náðir hjálparsamtaka.

Davíð Oddsson myndi ábyggilega orða þetta á sinn ósmekkvísa hátt, eins og hans sagði forðum daga, að það væri alltaf til fólk sem að væri tilbúið að þiggja ókeypis mat. Það eru liðnir 6 mánuðir frá hruni og ekki bólar neitt á neinni skjaldborg nema ef að vera skyldi skjaldborginni um Alþingi.

Steingrímur J.er orðinn svo "slípaður" eftir að hafa fengið ráðherraembættið að það ætti hreinlega að  búa til heimildamynd um manninn "fyrir og eftir ráðherraembætti". Jóhanna tók víst ekki þátt í neinu í fyrri ríkisstjórn sem að stuðlaði að hruni bankanna. Það var víst allt hinum að kenna. Hvar er skjaldborgin um heimilin og hvar er Eva Joly?


mbl.is Metaðsókn hjá Samhjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðalmennskan í Idol stjörnuleit.

Furðuleg útkoma í Idol stjörnuleit. Keppendur sem að sýna meðalmennsku þátt eftir þátt komast áfram, en keppendur sem að eiga einn slæman dag eftir erfiða veikindaviku eru dæmdir úr leik. Hrafna og Georg Alexander tvö neðstu í kvöld, ég er sammála Selmu, þetta er skandall.

Ég er aftur á móti ekki sammála Birni Jörundi að maður með 41 stigs hita og ælupest sé aumingi ef að hann sé ekki að æfa textann heima í rúmi við svona kringumstæður.

Björn Jörundur vertu ekki að reyna að leika Bubba Morthens, í fyrsta lagi hefur þú ekkert í hann að gera og svo er það ekkert til eftirbreytni að "reyna" að leika Simon Covell.

 Vona að Matti haldi áfram í næstu viku, annars nenni ég ekki að horfa/hlusta á meðalmennskuna lengur.


Hvar er Eva Joly?

Enn og aftur heyrir maður af því að nú skuli fjölga þeim einstaklingum sem að rannsaka skuli aðdraganda og orsök bankahrunsins. Núna síðast í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Svo sem allt gott um það að segja.

 En ég spyr: Hvar er Eva Joly? Fyrir nokkrum vikum síðan stóð til að hún yrði ráðin til að rannsaka þetta mál. Fyrir nokkrum dögum síðan var minnst á það í fréttum að ekki væri víst að hún yrði ráðin til starfans vegna kostnaðar sem af því hliti.

 Það vita jú allir að Eva Joly hefur ákveðnar og sterkar skoðanir á því hvernig eigi að taka á fjárglæframönnum. Skildu einhverjir hafa orðið hræddir og kippt í einhverja spotta?


Jóhanna á reynslulausn fyrir góða hegðun?

Spaugstofumenn tóku vel á málum s.l. laugardag um "afplánun " Jóhönnu Sigurðardóttur í stjórnmálum s.l. 20 ár.

Nú er hún búin að bjóða sig fram til formanns, á síðustu stundu að sjálfsögðu vegna þrýstings. Já svona gerast hlutirnir.

Nú í gær kom fram að Samfylkingarfólk ásamt Sjálfstæðismönnum tóku ekki mark á athugasemdum frá Davíð Odddssyni fyrrv. Seðlabankastj. í febrúar 2008 að ískyggilegir hlutir væru að koma fram á fjármálamörkuðum hérlendis.

Geir H.Haarde og Ingibjörg Sólrún héldu út í heim og sögðu að allt væri í himnalagi á Íslandi, þvert á þær upplýsingar sem að komu frá Davíð.  Jóhanna Sig. "kóaði" með í þessari atburðarás.

Ég vona bara Jóhanna mín, að eftir kosningarnar 25. apríl , þar sem að þú verður væntanlega forsætisráðherra (allt fyrirfram ákveðið), fáir þú  reynslulausn hið fyrsta vegna "góðrar hegðunar í fyrri ríkisstjórn". 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband