Alvarlegt einelti getur verið ávísun á sjálfsvíg.

Ég vil tjá mig hérna um umræðuna sem að hefur verið vegna eineltismálsins í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Gerendur eineltisins eru ennþá í skólanum og þolandinn þurfti sjálfur að leita sér læknishjálpar.

Ég á son sem að varð fyrir einelti árum saman í grunnskóla  Þeir atburðir sem að áttu sér stað þá, hafa markað líf okkar, mín og sonar míns æ síðan. Það eru 8 síðan að hann losnaði úr þessum skóla.

Þetta einelti var hrottalegt bæði andlegt og líkamlegt. Það var oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hann hugsaði um að fyrirfara sér. Ég þakka Guði fyrir að hafa son minn ennþá hjá mér.

Ég efast um að líf okkar muni nokkurn tímann verða eins og það var. Sonur minn er samt alveg ótrúlega kröftugur, dugmikill og kjarkmikill. Hann er ennþá að hugsa til baka og tala um fortíðina og finnst mér það gott. Maður á nefnilega að ræða málin, það er besta lækningin.

 En nei, hann er ekki alveg tilbúinn að fyrirgefa, held ég. Kannski einhverjir gæfu sig fram og bæðu hann afsökunar? Hann hefði þá valið sjálfur, aldrei þessu vant.

Ég er mjög stolt af hans kjarki og þor, hann fer sínar eigin heilbrigðu leiðir í lífinu. Og hann er svo þrjóskur að ég veit að ef að hann bítur eitthvað i sig þá fer hann ansi langt á þrjóskunni.

En erfiðar stundir geta komið og þá ræðum við þær. Grundvallaratriðið er að tala saman um hlutina.

Ég er móðir hans og því hef ég aldrei talið það eftir mér að berjast fyrir son minn. Sársaukafullt var það engu að síður þegar þáverandi skólastjóri, hrópaði að mér fyrir fyrir um 6 árum síðan í viðurvist sálfræðings sonar míns, að sonur minn hefði aldrei orðið fyrir einelti og það væri ekkert einelti í hans skóla.

Þess vegna vil ég segja við þolendur eineltis og aðstandendur þeirra: Gefist aldrei upp, rétturinn er ykkar!


Hey Joanna.......

Hvar ertu Jóhanna? "Við sjáum nú til lands" segja bæði Gylfi Magnússon og Steingrímur J. í fréttum Ríkissjónvarpssins í kvöld. Vorum við sem sagt bara að bíða eftir að geta sett Byrr og Spron á hausinn. Alveg furðuleg röksemd þar á ferð?!

Viðræður við kröfuhafa voru í góðum gír, þegar að Gylfi sér sig knúinn til þess að segja upp starfsfólki Byrr og Spron á laugardagseftirmiðdegi s.l.

Já og við erum að fara í kosningar FootinMouth nei ekki ég.


Ingimar Karl enn og aftur frábær.

Haltu svona áfram Ingimar Karl. Langt síðan að maður hefur heyrt þennan tón hjá fréttamanni. Þeim sem að ekki hlustuðu ekki á fréttir Stöðvar 2 í kvöld, er bent á að horfa á endursýningu eða á netinu. Rifjar upp fortíðina á alveg stórkostlegan hátt!

Neyðarlínan og Goldfinger?

Hvernig stendur á því að Sjálfstæðisflokknum finnur allt í einu hjá sér sök þegar að upp kemst um fjárframlag Neyðarlínunnar?  Eitthvað dularfullt þar á ferð.

Hvernig var með þetta fjárframlag Geira á Goldfinger til Sjálfstæðisflokksins 300 000 kall takk! Hámarkið sem að mátti veita hverjum stjórnmálaflokki?  Eru einhver "hagsmunatengsl" þar á ferð?


mbl.is Skilar framlagi Neyðarlínunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonarneisti betri en enginn neisti.

Vonarneisti er betri en enginn neisti. Okkur vantar hér mann sem að kann að blása kjarki í fólk líkt og þessi maður gerir. En þess verður langt að bíða.

Hér fer tíminn endalaust í  tal um hvað eigi að gera (næstum 6 mán. eftir fall) og við eigum að treysta þessu fólki í kosningum?


mbl.is Obama sér vonarneista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhvernveginn finnst mér þetta ekki við hæfi......

Einhvernveginn finnst mér ekki við hæfi  að menn séu alþingismenn og/eða ráðherra ásamt nefndarstörfum og séu jafnframt formenn stéttarfélaga og formenn stjórna hjá lífeyrissjóðum.

Einhvernveginn finnst mér ekki við hæfi  að menn séu alþingismenn og/eða ráðherrar og vera jafnframt í einkabusiness og geti þannig fengið sérstaka fyrirgreiðslu á Alþingi.

Þetta kallast spilling, sem viðgengst ennþá á Alþingi að mínu mati. 

En þetta er jú bara mín skoðun.


Formannsslagur og formannsþráhyggja!

Það er alveg á hreinu að ef að Kristján nær ekki formannsslagnum núna og er búinn að tapa varaformannsslagnum áður gegn Þorgerði Katrínu, þá er hans pólitíska framtíð í flokknum ansi tvíræð að mínu viti.

Líkt og með Lúðvík Geirsson hér í Hafnarfirð sem að hafnaði í 3. sæti í Kraganum en stefndi að því 1.  Var áður talinn einn af þeim efnilegri sem Samfylkingarformanni framtíðarinnar.

 Allt er í heiminum hverfult og þarf lítið til að málin breytist. Hefði sjálf viljað sjá Lúðvík í 1.sæti og síðar í formanninn. Jóhanna Sig. gerði stórpólitísk mistök með því að svara ekki fyrr en um seint og um síðir kallinu um formannsstöðuna.

Ég missti álitið á henni, hún gerði þarna lítið úr fólkinu í Samfylkingunni sem að beið í ofvæni eftir svari frá henni og gerði líka lítið úr kjósendum Samfylkingarinnar. Hún gaf engum öðrum færi á að bjóða sig fram og beindi (neikvæðri) athygli að sjálfri sér.

Hefur síðan ekki enn gefið upp hve lengi hún ætli sér formannsstólinn. Er þetta ekki "pínu" hroki hjá verðandi formanni í "fínum og flottum flokki" eins og hún orðaði það sjálf?


mbl.is Kristján Þór tilkynnir um framboðsáform
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillingin endalausa hjá fjórflokkunum. Það fær enginn atkvæðið mitt!

Væri ekki við hæfi að hún dragi sér í hlé frá Fjármálaeftirlitinu eða er þetta bara allt í lagi? 

Mér er orðið ofboðið. Ætla að skila auðu 25. apríl. 

  

Dóttir Ögmundar í stjórn FME

 

Dóttir Ögmundar Jónassonar situr í varastjórn FME.

Sunnudagur 22. mars 2009 kl 09:49

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Nokkra athygli hefur vakið að Guðrún Ögmundsdóttir, hagfræðingur og dóttir Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra, hafi nýverið verið skipuð í varastjórn Fjármálaeftirlitsins.

Guðrún varð nú nýlega þrítug og hefur bæði starfað í Seðlabankanum sem og hjá greiningardeild Kaupþings.

Samkvæmt frétt á pressan.is var Guðrún skipuð í stjórn Fjármálaeftirlitsins samkvæmt tilnefningu frá Seðlabanka Íslands. Mun tilnefningin hafa verið gerð í tíð fyrrverandi bankastjórnar, undir forystu Davíðs Oddssonar formanns bankastjórnarinnar.

 


Lyf fyrir M.S sjúklinga.

Það er með ólíkindum að hlusta á kostnað vegna nýs lyfs sem að gæti gerbreytt lífi fólks. Hvað kostar að halda uppi þeim skrípaleik sem að heitir víst embætti Forseta Íslands?

Lyfið sem að gæti gerbreytt lífi M.S. sjúklinga kostar um 5 000 000 kr. ári fyrir hvern sjúkling.

Það kostar fleiri hundruð milljónir á ári að haldi uppi þessu "embætti" sem að er helsi á þjóðinni og verður okkur meir og meir til skammar.


Katrín og rjómaterturnar.

Katrín Jakobsdóttir upplýsti landsmenn í Sjálfstæðu fólki s.l. sunnudag að hún hefði lengi verið búin að hlakka til að komast í ríkisstjórn, til þess að geta borðað dýrindis rjómatertur í morgunmat. Á okkar kostnað að sjálfsögðu. Þeir landsmenn sem hún telur sig vera að berjast fyrir, eiga hins vegar margir hverjir ekki fyrir mat og verða að treysta á Fjölskylduhjálpuna, Hjálparstofnun krirkjunnar og fleiri hjálparsamtök í viku hverri til að sjá sér og sínum farborða.

Steingrímur J. tjáir sig lítið um sínar matarþarfir. Hins vegar virðist hann vera orðinn skoðanalaus um AGS. Engin þörf á að skila láninu núna. Tölum nú ekki um hvalveiðarnar. Engin þörf á að gera neitt í því máli, þó svo að við séum að missa viðskiptatengsl erlendis, sem að hefur tekið mörg ár að byggja upp.

Þessar þjóðir segja: Við höfum ekki viðskipti við þjóð sem að drepur hvali. En þetta skiptir Steingrím J. engu máli lengur. Á meðan að hann hefur um 500 000 kr. í laun sem þingmaður, um 800 000 kr. í laun sem ráðherra (þessar tölur nefndi Katrín í áðurnefndu viðtali, Steingrímur er varla eftirbátur hennar?) og einhverja 100 000 kalla í viðbót í nefndarstörf þá skiptir þetta víst engu máli lengur!

 Ég tala nú ekki um, eftir að hver skoðanakönnunin á fætur annarri sýnir, að þjóðin ætlar að láta þetta sjónarspil vera ráðandi næstu árin hér á landi, þá er auðvelt að láta "sannfæringuna fallera".

Verði þér svo að góðu Katrín mín, ég er viss um að það verða rjómatertur í boði eftir kosningar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband