Færsluflokkur: Dægurmál

Áfallahjálp óskast strax! Jesús minn, hvar er Eva Joly?

Tilfærsluútgjöld......................???

http://dagskra.ruv.is/ras1/4463410/2009/06/28/2/

 Hvar eru peningar útrásarvíkinga og hvar er Eva Joly?


Riddarakross fyrir vel unnin störf, eða hvað? Ólafur forseti, Svavar og Steingrímur....

Steingrímur J. leggur sig á fórnaraltari VG og segir: "Það er annaðhvort ég eða framtíð íslensku þjóðarinnar". Já, hvorki meira né minna. Hefði hann ekki átt að hugsa aðeins meira út í þennan þátt málsins áður en að hann gerði Svavar Gestsson að yfirafgreiðslumanni Icesvesamningsins eða taldi hann alþingismenn og Íslendinga yfirleitt, svo mikil fífl að við myndum samþykkja þetta orðalaust?

Ætlar "háttvirt" Alþingi Íslendinga að veita Steingrími J. og Svavari Gestssyni riddarakrossinn fyrir vel unnin störf eða hvað, eða mun það kannski koma í hlut flokksfélagans hins háæruverðuga forseta vors Ólafs Ragnars Grímssonar?


Algjör þöggun fjölmiðla. Förum við ekki bara rúntinn í sumar og samþykkjum Icesave?

Ég sem að hélt í heimsku minni að fólk væri að sligast undan síhækkandi bensínkostnaði?  Ég sem að hélt líka að fjölskyldur mættu ekki við svo miklu í þessu landi. Kannski misskilningur, eða ekki?

Ég býst allavega ekki við því að skjólstæðingar Fjölskylduhjálparinnar hafi verið mikið á faraldsfæti þessa helgina. Fjölskylduhjálpin þarf nefnilega að loka nokkrar vikur ( 1 eða 2) í sumar vegna starfsmannaeklu, allt starf unnið í sjálfboðavinnu. Stofnun sem að hingað til hefur ekki haft undan matarbeiðnum frá fólki.

 Mæðrastyrksnefnd er víst á mörkunum að hafa nógu mikið fyrir skjólstæðinga sína og það sama má segja um Hjálparstofnun kirkjunnar. Rauði krossinn hefur ekki heldur undan beiðnum frá fólki sem að á ekki fyrir mat.

Algjör þöggun fjölmiðla um þetta ástand er skandall.


mbl.is Mikil umferð til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

28 ára happy húsmóðir, móðir og "det hele"?

Þegar að ég var 27 ára fékk maður nú ekki alltaf svefnfrið vegna veikinda barns, en það er nú oft svo með blessuð börnin manns. Þegar að sonur minn var á 2. ári og ég sem sagt 27 ára, byrjuðu umgangspestirnar hjá honum fyrir alvöru. 

Þegar að hann varð þriggja ára gekk á með almennum umgangspestum, skinum og skúrum.

 Siðan þurfti maður að vera fullkomin húsmóðir, móðir, námsmaður og allur pakkinn.

Ég man ekki eftir neinni rosahamingju á þessum tíma. Ætli lífið hafi ekki bara verið svona mitt á milli.

Og svo er alltaf hægt að fá sér strípur ....... og/eða velja sér rétt sjampó...?


mbl.is Konur hamingjusamastar 28 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kastljósviðtal á "mannamáli"

Í samhengi við þessa frétt mbl.is langar mig að benda á viðtal Sigmars Guðmundssonar við Einar Má Guðmundsson í Kastljósi gærkvöldsins. Mjög gott viðtal og eitt af því fáa sem að mér hefur fundist vera sagt af viti frá "hruni".

 Eigum við ekki að segja, að mér finnst að hér sé verið að tala á mannamáli.

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4431415/2009/06/26/


mbl.is Seðlabanki sniðgenginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kastljós gærkvöldsins á RÚV vefnum allt í klúðri. Væri hægt að laga þetta?

Hef ítrekað verið að reyna að spila Kastljósþátt gærkvöldsins sem að var í senn bæði fróðlegur og skemmtilegur.

 En eitthvað hefur klúðrast þar, því að þar koma einungis um 5 til 10 mín um Michael Jackson, en ekkert af því sem á undan var komið. Meira að segja umfjöllunin um hann hefur ekkert upphaf, útsending byrjar í miðri frásögn.

Væruð þið ekki til í að laga þetta?


Jóhanna Sigurðardóttir = Margaret Thatcher

Hva, var hún að taka stúdentspróf..... er ég að missa af einhverju Agnes mín?

Hvernig er annars með Icesave fær hún 10.00 í einkunn þar líka?

 


mbl.is Jóhanna glansaði á prófinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Billie Jean that's my girl.

Listamaður, söngvari og dansari af Guðs náð: Michael Jackson 1958 - 2009.

http://www.youtube.com/watch?v=15SxqqwF63U&feature=related

 


Mest selda plata tónlistarsögunnar - hvað heitir hún aftur? Michael Jackson.

Frægðin er ekki bara gleði og peningar. Það sannast aftur og aftur.

Sorglegt að þessi hæfileikaríki tónlistarmaður, sem að átti held ég eina mest seldu plötu tónlistarsögunnar, hafi farið í þann farveg sem að hann fór í með lýtaaðgerðir og slíkt. Mjög sorglegt.

Ekki hefur það gert líkamanum hans gott.

Getur einhver sagt mér hvað þessi plata hans heitir?


mbl.is Michael Jackson er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótu hálfvitarnir. Rás 2

Fyrir afskaplega góða frændur,skelli ég þessu inn, til hamingju!

Ljótu hálfvitarnir 

Ljótu hálfvitarnir hvetja fólk til að hjálpa þeim að halda sér. Þ.e. á toppnum...
Uppruni: www.ruv.is
Veldu lag sem ekki er á listanum sem þér þykir líklegt til vinsælda (valfrjálst)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband