Færsluflokkur: Dægurmál
19.5.2009 | 22:56
Borgarfulltrúi eður ei? Veit einhver svarið?
Samkvæmt vef Reykjavíkurborgar, er Svandís Svavarsdóttir ennþá skráður borgarfulltrúi V-listans. Ætlar hún sem sagt að vera á borgarfulltrúa, þingmanns, og ráðherralaunum og samt sem áður að segja við okkur, smælingjana, að við þurfum að draga saman seglin?
Hvar eru mótmælin núna? Gekk búsáhaldabyltingin sem sagt út á það, að koma vinstri liðinu til valda með sína spillingu?
![]() |
Fleiri græn skref samþykkt í borgarstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2009 | 19:26
Tortola, skattaskjól, bankastjórar og fl.
Jæja það skyldi nú aldrei fara svo að við fáum peningana okkar frá Tortola. Nú er það í raun í höndum forsætisráðherra að fara með málið inn á þing og fá samþykki fyrir því að við fáum peningana okkar til baka.
Ef að það verður ekki gert, geta þessar flokkar VG og Samfylking endanlega hætt að tala um gegnsæi.
Fyrir nokkrum vikum síðan var ákveðið að bankastjórastöður yrði auglýstar en hvað hefur orðið um efndirnar? Af hverju eru Birna Einarsdóttir Glitnis/Íslandsbanka"drottning" ennþá bankastjóri þar og Ásmundur Stefánsson sjálfskipaður Landsbankastjóri enn við stjórnvölinn?
Ein spurning í lokin: Er Svandís Svavarsdóttir ennþá borgarfulltrúi? Hún sagðist fyrir kosningar, ætla að hætta þar, kæmist hún inn á þing.
![]() |
Ísland í skattaskjólssamningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2009 | 18:44
Gleðigjafinn og þjóðarstoltið Jóhanna Guðrún.
Viðburðarrík tónlistarvika er á enda runninn. Ísland var í fyrsta sæti í undankeppninni á þriðjudaginn með 174 stig.
Hrafna tók Idol titilinn á föstudaginn.
Og síðan tók Jóhanna Eurovisionkeppnina með trompi eins og allir vita. Glæsilegur fulltrúi okkar á erlendri grundu. Ekki bara á sviði tónlistar, heldur féllu allir fyrir þessari glæsilegu ungu stúlku. Persónufylgi hennar erlendis alveg gífurlegt.
Jóhanna á heiður skilið fyrir að lyfta þjóðinni upp úr efnahagsdrunganum. Hún er sannkallaður gleðigjafi á réttri stundu. Mikið megum við vera stolt.
![]() |
Evróvisjón á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2009 | 01:00
Ísland fékk flest stig í undankeppninni s.l. þriðjudag. Frábært!
![]() |
Ísland varð efst í undanúrslitunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2009 | 23:43
Öskubuskuævintýri nr. 2. Jóhanna Guðrún.
Stundum verður maður orðlaus, það er ekki oft en nú gerðist það. Jóhanna Guðrún söng lagið nú mun betur en á þriðjudaginn og uppskar glæsilegan árangur. Hún er fagmaður fram í fingurgóma og vill greinilega gera allt upp á tíu.
Nú getur maður virkilega glaðst í sínu hjarta í nokkrar klukkustundir og verið stoltur Íslendingur, áður en maður fer aftur að hugsa um efnahagsástandið á Íslandi. Einu orði eða tveimur orðum sagt: Frábært, glæsilegt!
![]() |
Ísland í 2. sæti í Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 23:44
Öskubuskuævintýri Hröfnu.
Selma fór aldrei leynt með aðdáun sína á Önnu Hlín og ég held meira að segja að hún hafi gert henni óleik með öllu þessu lofi. Jón Ólafs var mikill aðdáandi Lísu, líkt og ég, þannig að Hrafna var svolítið að synda á móti straumnum.
Sjálf stóð ég með Georg Alexander og Lísu lengi fram eftir keppni en eftir að þau duttu út, vissi ég hvert ég myndi setja atkvæðið mitt.
Með hógværð sinni, látleysi, yfirvegun og mikilli og góðri rödd náði hún að heilla þjóðina, til hamingju Hrafna.
![]() |
Fékk tvær milljónir í verðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Menn afhjúpa sig mismunandi snemma. Borgarahreyfingin afhjúpaði sig á fyrsta degi og tók afstöðu með stjórninni og veikir stjórnarandstöðuna til muna. Var þetta ekki akkúrat þetta sem að við þurftum á að halda?
Gagnrýnir Borgara-hreyfinguna harðlega

Tryggvi segir að Borgahreyfingin hafi skipt á lýðræði og völdum. Mynd DV.
Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir vinnubrögð Borgarahreyfingarinnar harðlega í nýrri bloggfærslu. Borgarahreyfingin bauð fram með meirihlutanum þegar kosið var í fastanefndir þingsins í dag.
Bornir voru upp tveir listar, listar A og B. Þingmenn Borgarahreyfingarinnar mynduðu lista A með þingmönnum Samfylkingar og Vinstri grænna en þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks mynduðu saman B lista.
Einhverjum kanna að finnast það bráðgóð hugmynd að Borgarhreyfingin hafi gengið til liðs við stjórnarflokkana í kjöri um nefndarsetur á Alþingi. Þessi ákvörðun hópsins leiðir til þess að stjórnarandstaðan fær fimm færri nefndarsæti en ella og þar með veikist stjórnarandstaðan sem því nemur í aðhaldi sínu við valdhafana, segir Tryggvi.
Það er rétt að óska Borgarahreyfingunni til hamingju með niðurstöðu þessarar fyrstu atkvæðagreiðslu hópsins á Alþingi þau skiptu á lýðræði og völdum!, segir Tryggvi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.5.2009 | 18:47
Hvar eru afinn og amman fyrir munaðarlausa þjóð?
Hverjir eru okkar nánustu aðstandendur? Það eru Jóhanna Sig. og Steingrímur J. Þau eru foreldrar Alþingis og þvi að einhverju leyti til, foreldrar okkar
Þetta segir Steingrímur J. í DV í dag. Hann og Jóhanna eru sem sagt foreldrar Alþingis. Hvað er Kristján Möller gamall ?
Ja hérna hér, en hvað gerist þegar að Steingrímur og Jóhanna detta út af Alþingi, er þá Alþingi og þjóðin orðin munaðarlaus?
Furðulegar málefnalegar áherslur, þegar að þúsundir manna eiga ekki fyrir mat.? Hvað þarf til að fólk fari að mótmæla almennilega, eða er bara allt í lagi þegar að vinstri flokkarnir eru orðnir hluthafar í spillingunni.
Já Ögmundur, hvernig gengur með sykurskattinn? Þú getur greinilega ekki beðið eftir því að aukaskattleggja þjóðina, í stað þess að setja lög og reglur yfir tannlækna í þessu landi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 10:22
Drengskaparheit eða hitt þó heldur! - Atvinnuleysisbætur eiga að vera skattfrjálsar.
Í hverju ætli þetta blessað drengskaparheit felist? Hvað ætli standi efst, að vera hollir þjóð sinni, flokknum sínum og/eða sannfæringu sinni?
Svona í leiðinni, nú er búið að slá hugmyndinni um Stjórnlagaþing út af borðinu. Nú á það bara að vera ráðgefandi.........
Síðan tillaga til Jóhönnu Sig. Hvernig væri að láta atvinnuleysisbætur, um 150 000 kr. á mánuði vera skattfrjálsar? Ég vil engin svör á þann veg að þjóðfélagið hafi ekki efni á því.
Úr því að það var hægt að fjölga ráðuneytum, fara á ríkisstjórnarfund til Akureyrar fyrir hálfa milljón og einnig að greiða 54 milljónir á mánuði í biðlaunagreiðslur til ráðherra, þá er hægur vandinn að hafa atvinnuleysisbætur skattfrjálsar.
Það mætti kannski fækka sendiráðunum um 2 eða 3 og hætta fjárans bruðlinu.
![]() |
Aldrei fyrr hafa jafnmargir nýliðar sest á þing og í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 08:12
Biðlaunagreiðslur til fyrrverandi (og núverandi?) ráðherra. Hneyksli.
Mér finnst þetta skrítin fréttamennska. Af þessari frétt mætti skilja að tólf ráðherrar í núverandi ríkisstjórn séu einnig á biðlaunum sem fyrrverandi ráðherrar í fyrrverandi ríkisstjórn. Ég skil ekki alveg þessa fréttamennsku. Er þá Jóhanna Sig. sem sagt á biðlaunum sem fyrrverandi ráðherra og síðan á forsætisráðherralaunum?
Það er talað um biðlaunagreiðslur til fyrrverandi (og núverandi?) ráðherra upp á 54 milljónir á mánuði. Ef að þeir eru aðeins 10 sem að eru á biðlaunarétti, fær hver um sig 5.4 milljónir á mánuði. Ef að þeir eru mun fleiri, horfir dæmið að sjálfsögðu svolítið öðruvísi við.
Það kemur fram í fréttinni að laun ráðherra slagi nú hátt í milljón á mánuði, en undanfarna daga hefur verið talað um 850 000 kr. á mánuði. Laun forsætisráðherra eru núna komin í tæpa 1.1 milljón á mánuði en voru 935 000 kr. fyrir nokkrum dögum síðan.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er nú á biðlaunum sem ráðherra og einnig þingmaður og forseti Alþingis.
Síðan erum við einnig að borga fyrrverandi ráðherrum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í þarsíðustu ríkisstjórn væna summu.
Af hverju er þessu ekki mótmælt á Austurvelli nú? Almúginn á sem sagt að taka á sig byrðarnar á meðan þingmenn og ráðherrar velta sér í milljónum króna, per mann á mánuði. Hvar eru mótmælendur nú?
![]() |
22 á ráðherralaunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Stjórnmál, lífsmáti, heilsa
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar