Færsluflokkur: Dægurmál

Einelti á bloggi, já spurning hvort að það er hægt að kalla þetta annað en einelti?

Ég hef verið að velta fyrir mér einelti hér á moggabloggi. Einelti viðgengst víða hér í samfélaginu, á vinnustöðum, skólum og oft á tíðum í samfélaginu almennt manna á milli, því miður.

Þetta virðist einnig viðgangast hér á moggablogginu. Ég byrjaði að blogga hér í janúar, ætlaði reyndar ekki að gera það en eitthvað var það sem að rak mig áfram.

Fljótlega fór að bera á því að ég fékk að fá rætnar athugasemdir á bloggið mitt og það var eiginlega alveg sama hverju ég svaraði, hártogarirnar og oft á tíðum athugasemdir um hvers konar fífl ég væri að geta virkilega haft svona skoðanir, urðu æ algengari.

Sonur minn bloggar hér líka. Lesendur hér á moggabloggi komust fljótlega að því að værum mæðgin og hann fékk súpuna yfir sig líka. Ég skrifa mjög sjaldan athugasemdir á bloggið hans, en fyrir nokkrum vikum síðan setti ég athugasemd þar inn og var í kjölfarið kölluð Hórkatla Hræbjörnsdóttir. Smekklegt finnst ykkur ekki?

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna ég sé að þessu brölti þar sem að maður getur átt yfir sér persónulegar svívirðingar og skammir. En er ekki í lagi að láta rödd sína heyrast? Enda sé ég ekki, miðað við margt annað sem að skrifað er hér, að skrif mín hafi verið neitt stórkostlega alvarleg eða skaðleg. Ef að ég hef haft rangt fyrir mér hef ég beðist velvirðingar á því.

Steininn tók síðan úr um síðustu helgi þar sem að ég fékk yfir mig svívirðingar og skammir frá föstudagskvöldi og fram að aðfararnótt mánudags.

Ástæðan: Jú, hún var sú að ég efaðist um heildindi ákveðins bloggara hér á moggablogginu um Icesavemálið og var búin að vitna í það. Allt ætlaði um koll að keyra hjá viðkomandi moggabloggara eftir að ég setti fram þessi skrif mín.

Ég hef oft vitnað í ákveðin blogg með svipuðum hætti en aldrei fengið slíka meðferð eins og ég fékk þessa sólarhringa.

Á þessum sömu sólarhringum varð sonur minn líka fyrir aðkasti vegna þessara skrifa minn. Einum þeirra sem að ætluðu ekki að hætta aðförunni að mér, varð ég að benda á að það væri til nokkuð sem að héti friðhelgi einkalífs. Þá hætti hún - loksins.

Ég ætla að láta hér fylgja það sem að gekk á um síðustu helgi og láta síðan hvern dæma fyrir sig. Vonandi tekur ekki við ný törn þessa helgina með svívirðingum og skömmum.

Þetta er blogg Láru Hönnu Einarsdóttur 24.07.09:

Sterk og ákveðin forysta Sjálfstæðisflokksins

Icesave er mál málanna þessa dagana, vikurnar og mánuðina. Það væri að æra óstöðugan að bæta á umfjöllun um það volaða mál sem er í öllum fjölmiðlum og allir hafa einhverja skoðun á. En það eru helst skoðanir alþingismanna og sérfræðinga sem komast að í fjölmiðlunum. Við hin látum okkur nægja netið og bloggið. Stuðningur við Icesave-samninginn á þingi er óljós í meira lagi þessa dagana og sífellt eru nýir fletir á málinu afhjúpaðir - enginn góður.

Afstaða stjórnarþingmanna er óskýr - en afstaða stjórnarandstöðu alveg klár. Stjórnarandstöðuflokkarnir vilja ekki samþykkja samninginn. En hvað vilja þeir gera? Hver er þeirra lausn?

Hinn nýi formaður Sjálfstæðisflokksins er sterkur og ákveðinn leiðtogi sem hlýtur að vera dáður af flokksmönnum sínum eins og hefð er fyrir í flokknum - með nokkrum undantekningum þó. Í fréttum RÚV í kvöld var hann spurður hvað hann og flokkurinn hans vildi gera í Icesave-málinu. Svar formannsins var afdráttarlaust, ákveðið og afgerandi eins og hans er von og vísa. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi beðið hugmyndafræðilegt gjaldþrot með falli frjálshyggjunnar er nýi leiðtoginn greinilega sá, sem mun hífa flokkinn úr öldudalnum með vasklegri framgöngu sinni, ákveðni, hugmyndauðgi, málefnalegum svörum og frábærum lausnum.

Það sem mér finnst eiginlega verst við þetta viðtal, er að fréttakonan lét hann komast upp með þetta svar - ef svar skal kalla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann

Þetta er rökfræðilegt gjaldþrot á gígantískum skala, og tek ég vægt til orða. Jeminn eini.

Jón Frímann, 24.7.2009 kl. 01:42

2 Smámynd: Dóra litla

 

Þetta svar var nógu skýrt fyrir mig

mbk

Dóra litla, 24.7.2009 kl. 01:54

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Að hugsa sér hann var kosinn formaður fyrrum stærsta stjórnmálaflokks landsins.  Hann er til skammar, fyrir bæði sjálfan sig og flokkinn. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.7.2009 kl. 01:55

4 Smámynd: Gylfi Gylfason

Æææææ. Algjört klúður hjá Bjarna en hann er bara ekki leiðtogi svo einfalt er það

Gylfi Gylfason, 24.7.2009 kl. 02:59

5

 

Þetta er vitanlega ömurleg frammistaða formannsins. En hann hafði þó lög að mæla þegar hann sagði að ríkisstjórnin hefði "samið af sér."

Það er glæpur Steingríms--já, glæpur--að hann setti saman lið undirmálsmanna til samninga, gaf þeim þau fyrirmæli ein að semja sem hraðast ("Ég nennti bara ekki að standa í þessu lengur," sagði Svavar og verða þau orð höfð í bölvun svo lengi sem land byggist), og reynir nú að troða þessu gegnum þingið skv formúlu gamla ráðherraveldisins. Ef ekki væri fyrir hugrekki borgarahreyfingarinnar hefði honum sennileg þegar tekist það.

Það eina--það eina--sem Icesavesamningurinn afkastar er að gefa Bretum og Hollendingum öll ráð og réttindi til að stjórna eftirmálum þegar til þeirra kemur, sem er ástæðan fyrir ákafa þeirra að við samþykkjum. Rökrétt niðurstaða Alþingis er að hafna Icesave, sem er tillaga formannsins. Það vita allir, ekki síst Bretar og Hollendingar.

Kristján Gunnarsson (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 03:55

6

 

 HAHA  LoL hann var gódur, hann gerir hvad sem er til ad fella IceSave en hefur ekki neina lausn á

thessu hrykalega icesave klúdri sem er hanss flokki ad kenna, BB vill bara fá meiri völd sama

hvad thad kostar Íslensku thjódina..... Angry

Jóhannes (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 08:03

7

 

Það sem mér finnst nú bara svo ofur skemmtilegt svona í allri þessari umræðu er að Sjálfstæðismenn tala um svipuhögg og kúgun.  En hvernig er það, ef maður er í xD á maður þá bara alltaf að vera sammála formanninum?  Það voru nú ekki nema ein kona sem þorði að kjósa eftir sinni sannfæringu í ESB. (ég ekki að fara í ESB umræðuna, heldur bara að benda á svipuhöggin hjá xD)

Mér er farið að leiðast hvað fólk er óduglegt að lýta í spegilinn.  Tobba kúla vældi um að þjóðin mættu engu ráða, en bíðið við þegar hún var í stjórn þá hló hún af öllum sem stungu uppá þjóðaratkvæðisgreiðslum... En núna þegar hún ræður ekki för, þá er það ofur mikilvægt!  Meðan hún tekur ekki einu sinni upp umræðuna um gjafir bankanna til hennar...

Þetta er skrítið þetta þingfólk.  Mætti halda að þau sé alveg laus við alla sjálfsgagnrýni og sjái varla lengra en nef sitt.... 

Hvernig er hægt að fara að breyta þessu?  Við þrufum að fara að taka alþingi í gegn. Fara að skoða aðrar hugmyndir... Þetta er ekki að virka svona.

Hvernig væri að fólk yrði kosið á þing. Engir flokkar.  Ráðherrar verða utanþingsfólk, sérfræðingar úr þeim greinum sem ráðuneytin þurfa.  Hætta þessu stjórnarandstöðu og stjórnar bulli, sem greinilega skilar engu?  Nei bara hugmynd... Finnst bara þetta kerfi alveg gallað og rotið og ofsalega 1807!

Unnsteinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 10:19

8 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Dauðans dapurt... ég trúði því eiginlega ekki að ég væri að heyra þetta... og að fréttamaðurinn hafi ekki saumað að honum sýnir hvað fréttamennska á Íslandi er slök... hann hefði verið húðflettur alls staðar annarsstaðar.

Jón Ingi Cæsarsson, 24.7.2009 kl. 10:51

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

 

haha þetta er stórkostlegt !!  Takk fyrir þetta Lára :)

Það er alveg sama hvaða BB kemur frá sjálfstektinni.. þeir eru allir eins.

sauðir

Óskar Þorkelsson, 24.7.2009 kl. 11:00

10

Ha ha ha, frábært svar hjá Bjarna... þvílíkur ræðursnillingur, þvílíkur sjórnmálaskörungur, þvílíkur leiðtogi.

Reynir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 11:02

11 Smámynd: Hörður Halldórsson

 

Hann stressaðist aðeins kallinn í restina,óþarfi að gera mál úr því.

Hörður Halldórsson, 24.7.2009 kl. 11:16

12

 

Frábært viðtal á margan hátt, ógleymanleg frammistaða hjá "foringjanum".  En algjörlega sammála að það versta "við þetta viðtal, er að fréttakonan lét hann komast upp með þetta svar - ef svar skal kalla". 

Ég hefði spurt frekar út í hvað nákvæmlega að samningnum, og síðan hvað hann teldi ásættanlega niðurstöðu fyirr þau atriði sem hann nefndi.  T.d. ef finnst vextirnir of háir, þá spurt hvaða vaxtatölu hann gæti samþykkt o.s.frv.  En ekki síst myndi ég spyrja hann hvað hefði breyst frá því fyrir áramót þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á og fékk samþykki Alþingis til að ganga til samninga um Icesave?  Og það m.v. verri kjör en nú bjóðast?

Íslenskir fréttamenn eru því miður sjaldnast starfi sínu vaxnir, hvorki fyrir né eftir hrun.  Sem betur fer nokkrar undantekningar og þar koma starfsmenn Spegilsins fyrst upp í hugann, og ekki síst Sigrún Davíðsdóttir.  Næst koma nokkrir "óformlegir" bloggarar sem unnið mikið ólaunað starf fyrir þjóðina á síðustu mánuðum, eins og þú og Baldur McQueen (sem veit að færri "ná" en hann með mjög mikilvæga utanaðkomandi sýn á hlutina). 

ASE (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 11:19

13 Smámynd: Jón Baldur Lorange

 

Þetta var aldeilis uppbyggilegt blogg hjá þér Lára Hanna og sýnir því miður að pólitík ræður orðið för hjá þér í bloggskrifum. Þú ert komin í pólitískan sandkassaleik með atvinnustjórnmálamönnunum. Það er ekki trúverðugt, verð ég að segja. Hér ertu að reyna að slá ryki í augum á kjósendum, alveg samkvæmt formúlunni, og tókst vel upp. Síðan klippirðu til fréttina til að áróðurinn verði áhrifameiri.

Er aðalatriðið hvað Bjarni Ben. VILL gera, eða er aðalatriðið hvað stjórnin ER að gera þjóðinni með samþykkt Icesave samnings, sem alltaf er að koma betur í ljós að er meingallaður. Ættum við ekki að einbeita okkur að því að gera afleitan samning betri og koma vitinu fyrir forystumenn ríkisstjórnarinnar svo það verði gert? Eða á að skjóta sendiboðann eða stjórnarandstöðuna, sem er að koma fram með réttmæta gagnrýni á þennan eitraða samning?  

Jón Baldur Lorange, 24.7.2009 kl. 11:27

14 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

 

Bölvað bull er hér á ferðinni! Formaðurinn segir afdráttarlaust að sjálfstæðismenn hafni því algjörlega að íslenska rikið taki á sig þær gríðarlegu ábyrgðir sem í Icesave-samkomulaginu felast. Á mannamáli þýðir það að Bjarni vill að samið verði upp á nýtt. Þarf þetta að vera skýrara? Á sömu skoðun er meirihluti þingmanna. Ríkisstjórnin virðist komin á undanhald í málinu, m.a. með því að gera hlé á þingstörfum . . . 

Ágúst Ásgeirsson, 24.7.2009 kl. 11:30

15 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ha ha jón Baldur og Ágúst.. BB svaraði EKKI spurningunni því hann hafi EKKERT svar.. um það snýst þessi bloggfærsla.. sjálsftekttin er hugmyndafræðilega gjaldþrota því hún þrífst bara í bóluefnahag.

Óskar Þorkelsson, 24.7.2009 kl. 11:34

16

 

Ég held að Icesafe sanni það frekar en önnur mál á Alþingi, algjöra nauðsyn þess að aðskilja löggjafavaldið og framkvæmdavaldið (Ríkisstjórnina) Þetta á ekkert skylt við lýðræði sem hefur farið fram á Alþingi undanfarið. Það að stjórnarflokkarnir handstýri þingmönnum í að kjósa samkvæmt vilja flokkana.

Þetta eru nákvæmlega sömu vinnubrögð og Davíð og fleiri voru gagnrýndir fyrir.

Það þarf að fara að forgangsraða rétt hér. Upp með stjórnlagaþing strax, Lög um bindandi þjóðaratkvæðagreiðslur, persónukosningar. Aðskilnað löggjafa og framkvæmdavalds. Enga ráðherra að handstýra hvaða lög eru samþykkt hér. Flokkavaldið burt! Fjórflokkavaldaklíkan var það sem kom okkur í þetta bull.

Á Alþingi á að vera kosið fólk ekki flokkar. Til að semja lög fyrir fólkið í landinu ekki flokkana. Ráðherrarnir sem eiga svo að framfylgja þeim, eiga þar hvergi að koma nærri.

 Sem dæmi  um stjórnleysið:

Bæði fyrrverandi Ráðherrar og þingmenn úr flokkunum,  sem sem eiga jafnvel glæpsamlega ábyrgð á því hvernig fyrir okkur er komið, T.D. Fyrrv. Viðskipta og bankamála Ráðherra(yfirmaður fjármálaeftirlits) Björgvin G. Ásamt öðrum fyrrverandi og núverandi ráðherrum, Ætla að taka ákvörðun á Alþingi hvort þjóðin eigi að greiða Ícesafe! Þeirra eigin klúður. Nei takk segi ég, þetta lið er vanhæft.

Þjóðar atkvæðagreiðslu strax.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 11:41

17 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Utanþingsstjórn er eina vonin.

Margrét Sigurðardóttir, 24.7.2009 kl. 11:53

18

 

Lára Hanna af hverju eigum við að borga sukk og svínarí Sigurjóns Árnasonar? Það var engin ríkisábyrgð þar á bak við og Svavar klúðraði samningnum ef að hægt er að kalla þetta samning. Ertu ennþá að mótmæla Icesave eins og þú gerðir þangað til að þú fékkst fund með Steingrími J.? Já pólitískur sandkassaleikur og ekki lengur hægt að taka mark á þér.

Landsbankamenn eiga að greiða sínar skuldir, þarft þú ekki að borga þær skuldir sem að þú tekur á þig. Sigurjón sagði að hann hefði ekki þurft annað en að fylgjast með hvað mikill peningur kæmi inn á Icesavereikninginn á hverjum sólarhring. Við eigum sem sagt að borga sukk Sigurjóns? Furðuleg afstaða hjá þér Lára Hanna...........

Ég er ekki Sjálfstæðismanneskja og tek ákvarðanir samkvæmt málefnum. Svandís Svavars. telur það vera allt í lagi að greiða atkvæði með eða á móti frumvarpi sem að faðir hennar er höfundur að. Þetta er siðferðiskennd í lagi eða þannig..................

Ég er sammála Jóni Baldri Longe um þitt "uppbyggilega" blogg. Eigum við ekki bara líka að borga skuldir hinna útrásarvíkinganna Lára Hanna mín?

Er ekki líka pínulítið "hugmyndafræðilegt gjaldþrot" hjá VG?

Eigum við kannski aðeins að rifja þetta upp?

http://skjarinn.is/einn/islenskt/malefnid/

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 12:14

19

 

Lára Hanna, klippistarfsemi þín í meðhöndlun þinni á þessu viðtali er skandall!!

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 12:20

20

...............og hér kemur fréttin í HEILD SINNI. Heiti fréttar:  Örlög Icesave .........

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 12:39

22 Smámynd: Gísli Baldvinsson

Ósköp eru menn viðkvæmir fyrir skærum Láru Hönnu! Hún hefur klippt stjórnmálamenn í öllum flokkum. Ætli séu komin sár undan "svipuhöggum og handjárnum" ?

Gísli Baldvinsson, 24.7.2009 kl. 13:04

23

Icesave reikningarnir eru alfarið í boði Sjálfstæðisflokksins!
 
Hugmyndafræði Davíðs Oddssonar var að það þyrfti ekkert að borga.
Það væri hægt að láta bankana stela peningum af almenningi í Hollandi,
Bretlandi og þýskalandi og sleppa við að borga til baka.
Þessvegna lét hann þetta viðgangast.
Yfirmaður fjármála Íslands lét þjófana vinna óáreitta og hundsaði
viðvaranir erlendra lögregluyfirvalda.
Þetta er fínt "Business Case" eða  "Viðskiptatækifæri"!
Bankarnir stela fullt af peningum, fara síðan á hausinn og allar kröfur
fyrnast.
En áður en bankinn fer í gjaldþrot er búið að koma peningunum fyrir á
öruggum stað, hjá klíkunni á Íslandi.
 
Þann 7 okt. 2008 kemur Davíð Oddsson kemur í drottningarviðtal hjá
ríkissjónvarpinu og lýsir því yfir að það þurfi ekkert að borga skuldir
bankana.
Eftir að hafa hlustað á viðtalið við forhertann "guðfaðir Íslands" gefur
ríkisstjórn Bretlands út skipun um að stöðva glæpastarfsemina og lætur
frysta eigur Íslendinga í Bretlandi.
 
Harkaleg viðbrögð Breta eru skiljanleg vegna viðtalsins við yfirmann
fjármála Íslands þar sem hann með pókerfés á smettinu segir að ræningjarnir
ætli bara að skila 5 % af þýfinu.
Þessi orð Davíðs Oddssonar birtust á fjarritum kauphalla um allan heim og
vöktu mikla athygli.
Sjálfstæðisflokkurinn gerði Íslendinga að skrælingjum Evrópu, þjófapakki
sem stelur af borgurum nágrannaþjóðanna.
 
Davíð Oddssyni og Sjálfstæðisflokknum tókst einnig að kollfella alla banka
Íslands á nokkrum dögum, gera Seðlabankann gjaldþrota og eyðileggja krónuna
sem gjaldmiðil.
Lélegasti og óhæfasti seðlabankastjóri allra tíma samkvæmt samdóma áliti
erlendra sérfræðinga var eftir dúk og disk dreginn froðufellandi út úr
Seðlabankanum með töngum eins og skemmd tönn. Honum hafði þó áður tekist að
hindra og tefja allar raunhæfar aðgerðir til endurreisnar þjóðfélagsins í
marga mánuði.
 
Þýfi þjófaklíku Sjálfstæðisflokksins, Icesave reikningarnir voru komnir í
1400 milljarða ISK þegar starfsemin var stöðvuð.
Af sinni "tæru snilld" hafði Sjálfstæðisflokkurinn og "Guðfaðirinn" komið
því þannig fyrir að almenningur á Íslandi var ábyrgur fyrir skuldunum.
 
Nú er komið að því að skila þýfinu, borga skuldirnar.
Þjóðir hins vestræna heims vilja ekki eiga viðskipti við okkur nema við
borgum skuldir okkar.
Það vill enginn eiga viðskipti við þjófa.
 
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 44 þúsund atkvæði í síðustu kosningum.
Það eru þannig 44 þúsund þjófar á Íslandi, þeir sem styðja landráðamennina
í Sjálfstæðisflokknum.
 
Þetta fólk á að sækja til ábyrgðar og láta það borga skuldirnar.
 
Það á að leggja Sjálfstæðisflokkinn niður og jafna Sjálfstæðishúsið við
jörðu.
Á staðnum verði gerður minningarlundur og þar reist minnismerki um "Helför"
íslenska efnahagskerfisins.
Það verður að varðveita vitneskjuna um óhæfuverk Sjálfstæðisflokksins til
að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.

RagnarA (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 13:06

24

 

Ragnar A.

Ég hef hvergi orðið var við neinar tilraunir til að sækja þetta þýfi, hvað þá að skila því.

 Reyndar sýnist mér á öllu að glæpamennirnir fái að halda þýfinu og öllum öðrum eignum sínum.

 En ég tel að það sé ekki ábyrgð almennings að bæta þennan þjófnað.

Held að bretum væri nær að sækja þessa menn til saka, enda Icesafe ekkert öðruvðísi en hvert annað pýramýdasvindl.

 Og það sem meira er, að Björgólfur og Co hafa efni á að borga þetta, það hefur almenningur almennt ekki.

Sigurður #1 (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 13:25

25

 

Annars er ég sammála þér með Sjálfstæðisflokkinn.

Tlveruréttur hans er enginn á íslandi í dag.

Hann ætti að hafa vit á að leggja sig niður sjálfurl, og þeir vesalingar sem eru að kjósa þessa drullusokka ættu að hafa vit á því

að segja ekki frá því upphátt svo aðrir heyri til.

Sigurður #1 (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 13:27

26 Smámynd: Kolbrún Heiða Valbergsdóttir

 

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 11:41

Algjörlega sammála! Það skiptir engu máli í vasa hvaða flokks maður leitar, þeir eru allir fullir af skít. Sorglegt en satt!

Kolbrún Heiða Valbergsdóttir, 24.7.2009 kl. 14:36

27

 

Nepotimsi heitir það, þegar ættartengsl en ekki eigin verðleikar og hæfni ráða för um frama.

 Íslenskt samfélag hefur sligast undan því fargi í áratugi og mun án efa gera um ókomna framtíð.

Það er ekki hrein tilviljun að landið sé að sökkva í sæ!

DoraB (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 15:29

28

 

Greinilegt er að Bjarni Ben. er ekki búinn að lesa samninginn, hann kom alveg af fjöllum, átti sennilega ekki von á óþægilegri spurningu úr þessari átt.

BB minnir mig alltaf á hana (þ.e fuglinn hana) á haug.

Kolla (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 15:53

29 Smámynd: Soffía Sigurðardóttir

 

19-20-21 Þórkatla.

Hanna Lára klippir viðtalið við Bjarna Ben ekki í sundur og hvað þá úr samhengi. Það eina sem hún klippir er að taka svar BB og tvítaka það aftur í lokin. Bara svona ef einhver hefði misst af því að hann svaraði!

Hér er allur textinn í frétinni með Bjarna Ben:

BB: Við munum aldrei fallast á þessa samninga eins og þeir liggja fyrir þinginu óbreyttir.
Sp: Hvað viljið þið gera?
BB: Ja, við viljum einfaldlega aðe... að... við .... höfnum því.... Við höfnum því algjörlega að íslenska ríkið taki á sig á þeim skilmálum sem að um er að ræða í þessum samningum þessar gríðarlegu ábyrgðir. Við teljum að menn hafi samið af sér í fjölmörgum ... í fjölmörgum e.. atriðum.
Sp: Sérð þú sem forystumaður stjórnarandstöðunnar fyrir endann á þessu máli?
BB: Ég sé ekki fyrir endann á því enn sem komið er.

Það var jú vitað fyrir að Bjarni Ben vildi hafna samningnum, en hvað vill hann svo gera? Við höfnum að taka ...með þessum skilmálum ... þessar ábyrgðir.  En hvað þá? Sömu ábyrgðir með öðrum skilmálum?

Segðu mér nú eitt Bjarni Ben.: Hvernig samning um Icesave vilt þú samþykkja?

...... Nei, nei, nei! Spurningin var ekki hvað viltu ekki, heldur hvað viltu samþykkja!

Soffía Sigurðardóttir, 24.7.2009 kl. 15:57

30 Smámynd: Soffía Sigurðardóttir

Æ, fyrirgefðu Lára Hanna, ég á auðvitað að fara rétt með nafnið þitt!

Soffía Sigurðardóttir, 24.7.2009 kl. 16:02

31

 

Soffía, þannig að bæði ég og Jón Baldur Lorange erum með skerta heyrt og athyglisbrest. Athyglisvert hjá þér Soffía mín að taka ekki eftir því hvernig Lára klippir þetta sundur og saman og tvítekur hlutina og tekur þenna mann fyrir í fréttinni.

Það væri kannski alveg tilvalið að rifja upp hvernig Steingrímur J. talaði um Icesave í okt.-nóv og svo núna og bera það saman. Það væri býsna athyglisvert.

Af hverju kom Lára Hanna ekki líka aðeins með tilvitnun úr Þór Saari og Sigmund Davíð?

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 16:25

32 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Já það er satt Bjarni Ben er ekkert foringjaefni.  En þetta ICESAVE-er alveg að gera mig vitlausan. Hvílík erkiflón eru stjórnmálamenn. Skilja ekki að réttlætistilfinning þjóðarinnar hefur verið troðin breskum fótum. Þegar þjóðinni var meinað að sækja sinn rétt með málsókn á hendur ríkisstjórn Breta, fyrir að sú ríkisstjórn notaði hryðjuverkalöggjöf á Íslendinga og eigur Íslendinga - var brotið á þjóðinni.  Stolt Íslendingsins var troðið fótum og í þetta skipti fótum stjórnmálamanna. Þetta svar sárt og afskaplega ódiplómatískt. ICESAVE er rangur gjörningur sem aldrei á að samþykkja, sérstaklega framkomu Breta og ESB.

Baldur Gautur Baldursson, 24.7.2009 kl. 17:49

33 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Leiðr:  [ICESAVE er rangur gjörningur sem aldrei á að samþykkja, sérstaklega EFTIR framkomu Breta og ESB].

Baldur Gautur Baldursson, 24.7.2009 kl. 17:53

34 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Alltaf gaman af D greyjum sem kvensunni Þókötlu, sem sjalfsagt skortir ekki heyrn né athyglisgáfu, en efast má hins vegar um að haldi fullu minni! Ekki er hún aðeins búin að gleyma að hún gaf út stórmerka yfirlýsingu þess efnis að hún væri hætt að birtast á þessu svæði, heldur er hún líka búin að STEINGLEYMA hvers vegna! En það var vegna þess að einvher var svo dónalegur og vondur við dömuna hana sjálfa hérna, hún yrði því bara að "hrökklast burt"! EFtir slíkt væl og skæl í eigin þágu, vílar hún hins vegar ekki fyrir sér að vera hér með dylgjur um síðuhaldara sjálfan og sleggjudóma um ahns skrif. Spurning hvort þyrfti ekki bara að rassskella hana fyrir þessa ótuktarsemi!?

Og svo er það blessaður karlinn hann Jón Baldur, sem talar hérna eins og skynheilagur syndapredikari yfir Láru Hönnu! Maður líttu þér nær, segi ég nú bara, hann einn af þessum að því er virðiðst réttlætisfullu boðberum í orði, en eru að engu öðru en að halda leynt og ljóst uppi vörnum og áróðri í ákveðinna þágu, D flokksins og þeirra sem þar fara fremst! Viðbrögð hans hérna sýna það svo glögglega!

Magnús Geir Guðmundsson, 24.7.2009 kl. 20:04

35 Smámynd: Jón Baldur Lorange

 

Það vantaði bara að botna þetta hjá Magnús Geir einhvern veginn þannig:

Svo mæli ég með að allir pólitískir andstæðingar mínir, og ríkisstjórnarinnar, verði, fyrir utan það auðvitað að vera rassskelltir opinberlega, að þeir verði baðaðir upp úr tjöru og fiðraðir! Við vinstri menn þolum ekki svona pólitíska gagnrýni og rökræður. Þeir sem eru á móti okkur eru heyrnalausir, með skort á athyglisgáfu og minnislausir með öllu. Ættu í raun að vera settir á hæli! 

 

Jón Baldur Lorange, 24.7.2009 kl. 20:19

36 Smámynd: Kolbrún Hilmars

 

Í hverra þágu er hér rifist um keisarans skegg?  Skiptir máli hver sagði hvað, hvenær, hvers vegna og hvar megi staðsetja þennan eða hinn  í pólitíkinni?  

Er einhver fús til þess að gleypa Icesavesamninginn eins og hann liggur fyrir, bara vegna þess að einhverjir leiðindagaurar úr leiðindastjórnmálaflokki/flokkum voga sér að mótmæla þeirri svívirðu?

Er einhver von til þess að við getum staðið saman, þótt ekki væri nema eitt augnablik?

Kolbrún Hilmars, 24.7.2009 kl. 20:42

37

 

 Flott athugasemd hjá þér Jón Baldur Lorange.

Athyglisvert Magnús að þér skuli hafa fundist yfirlýsing mín stórmerkileg, ég vissi ekki að ég hefði svona rosalega mikil áhrif.

Annars vil ég bara þakka þér fyrir "hlý" orð í minn garð. Ég bið bara fólk að dæma hvert fyrir sig um slíkt orðfæri, ef það vill á annað borð vera að taka afstöðu til svona athugasemda. Ég vissi hreinlega ekki að Lára Hanna væri yfir gagnrýni hafin en nú veit ég það. Betra seint en aldrei.

En svo hef ég verið að bíða eftir bloggi Láru Hönnu um samþykkt VG um aðildarviðræður að ESB sem að gengur þvert á flokksstefnuna, en það hefur eitthvað látið á sér standa.

En nú er víst best að þagna í athugasemdabloggi heilagrar Láru Hönnu svo að ég verði ekki rassskellt tvisvar, já eða oftar. Eitt í lokin: Svavar Gestsson lét rassskella sig í "samningaviðræðunum", kannski er það ekki svo slæmt..................

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 20:48

38 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta er algjörlega vonlaust dæmi og þegar verður búið að ljúga það í gegn setur það fordæmi gagnvart restinni af þrotabúum bankakerfisins og ríkissjóður mun þá sitja uppi með skuldir upp á amk. 5-6X árlegar tekjur hans (mjög varlega áætlað) sem þýðir að þriðjungur tekna hans amk. fer í vaxtagreiðslur. Síðan verða gefin út skuldabréf fyrir vöxtunum og þá verður þetta enn vonlausara osfrv. Síðan utan við þetta er Landsvirkjun algjörlega gjaldþrota með súrrealískt vitlaus fjárfestingarævintýri brjálæðinga á bakinu og orkusalan dugar engan veginn fyrir vöxtunum þar og það gjaldþrot mun bætast við ruglanda skattgreiðenda frá gjaldþrota bankakerfi. Ég gæti haldið áfram með gjaldþrota sveitarfélög og fjárhagslega martröð sem nefnist Orkuveita Reykjavíkur en læt þetta nægja að sinni.

Baldur Fjölnisson, 24.7.2009 kl. 20:54

39

 

Afburða klipping!  Grét af hlátri.

Eftir á hugsað veit ég samt ekki hvort maður hefði átt að hlægja eða gráta. Þetta er jú íslenskur alvöru pólítíkus, en ekki bara "cheesecake" í Schwarzenegger stíl? Er BB ekki arftaki Geirs Haarde, okkar fyrrverandi forsætisráðherra, innan Sjálfstæðisflokksins? 

Klippingarnar þínar eru FRÁBÆRAR   en kannski  ættir þú að gefa slóð á efnið sem þú klippir úr þó ekki væri nema til að verjast ásökunum um hlutdrægni um þau alvörumál sem þú vekur athygli á.

Agla (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 20:55

40

 

"Ég vissi hreinlega ekki að Lára Hanna væri yfir gagnrýni hafin en nú veit ég það." Fullyrðingin er afsönnuð um leið og hún er sögð.

Þeir sem vilja annars fá eitthvað um örlög sín að segja ættu að snúa sér að þessu: www.kjosa.is 

Rómverji (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 20:59

41

 

Vöndurinn fer kannski á loft í þriðja sinn en Rómverji:FootinMouth  Woundering Shocking  Sideways Gasp....?

En svona í lokin hér í dag: Bestu kveðjur til ykkar allra sem að þola ekki málefnalega gagnýni, hafið gott kvöld og góða helgi. Heart Smile

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 21:09

42 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sjálfstæðisflokkurinn hvaða skrípi er það ?

Finnur Bárðarson, 24.7.2009 kl. 21:53

43 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

 

Þórkatla Snæbjörnsdóttir,

Ef þú hefur fylgst með skrifum mínum og athugasemdum hér á blogginu hefurðu væntanlega séð að málefnaleg gagnrýni er ávallt velkomin. Ég hef ekki oft tíma til að svara, enda tel ég að allir hafi fullan rétt á að hafa sínar skoðanir og gagnrýna málflutning annarra. Enginn er hafinn yfir gagnrýni, hvorki ég, þú eða aðrir. En mér leiðist óneitanlega þegar verið er að ráðast á fólk með skítkasti, dylgjum og rógi, gera því upp skoðanir og leggja því orð í munn. Það getur aldrei talist málefnaleg gagnrýni.

Um daginn helgaðir þú bulli um mig heila færslu á blogginu þínu og sagðir mig hafa tekið U-beygju af því ég hefði hlotið einhverja "upphefð" - að þínu mati - sem hvort tveggja var miklar fréttir fyrir mig. Ekkert var fjarri sanni en ég nennti ekki að skipta mér af þessum fráleitu skrifum þínum og lét kyrrt liggja.

Það gerði ég hins vegar ekki þegar þú réðst harkalega á Þóru Arnórsdóttur í bloggfærslu þann 11. júní og afritaðir heilan bloggpistil frá mér. Greinilega kom í ljós að þú gerðir Þóru þar herfilega rangt til þar af því þú ruglaðist á fréttaklippum og sjónvarpsstöðvum. Ekki baðstu Þóru afsökunar á þeim mistökum þínum.

Í þessari bloggfærslu þinni ræðstu á Egil Helgason (sem þá var erlendis) fyrir flettiglugga á Eyjunni. Segir hann "afhjúpa sig". Ég hélt að allir vissu að Egill er ekki fréttamaður hjá Eyjunni og sér ekki um flettiglugga eða annað þar þótt bloggið hans sé vistað þar.

Í athugasemd nr. 18 hér að ofan segirðu: "Lára Hanna af hverju eigum við að borga sukk og svínarí Sigurjóns Árnasonar?" Seinna í sömu athugasemd segirðu: "Við eigum sem sagt að borga sukk Sigurjóns? Furðuleg afstaða hjá þér, Lára Hanna..." Ég spyr á móti: Hvenær í ósköpunum og hvar hef ég sagt að við ættum að gera það? Í öllum mínum skrifum um þau mál hef ég mótmælt því harðlega og fært fyrir því ýmis rök. Mig furðar á því að þú skulir voga þér að gera mér upp slíkar skoðanir og frábið mér svona málflutning.

Ef þessi klippa hér að ofan þýðir að ég sé í pólitískum sandkassaleik - þá hljóta öll mín myndbönd að vera því marki brennd. Þetta myndband er með því almildasta  og einfaldasta sem ég hef gert og ef þér finnst "klippistarfsemi mín og meðhöndlun á þessu viðtali skandall" (aths. nr. 19) þá verður bara að hafa það. Mér er nákvæmlega sama. Ég klippi ekki myndbönd til að þóknast þér eða öðrum, svo mikið er víst.

Og tilgangur pistilsins og myndbandsins er ekki að fjalla um Icesave-samninginn sem slíkan - með eða á móti - heldur benda á enn eitt dæmi um hve formaður Sjálfstæðisflokksins á erfitt með að hafa og tjá sjálfstæða skoðun, koma með lausnir og yfirhöfuð gera annað en vera með innihaldslausar upphrópanir eins og unglingur í Morfískeppni úr pontu á Alþingi.

Annar tilgangur úrklippunnar er að benda á hvað fréttamenn sleppa stjórnmálamönnum alltaf billega. Fréttamenn spyrja spurninga en stjórnmálamenn svarar henni ekki og tala bara út og suður - og komast upp með það. Eða vorum við einhverju nær um lausn Bjarna á Icesave-málinu eftir þetta viðtal?

Enn eitt dæmið um skítkast frá þér, Þórkatla, sem þú kallar gagnrýni er þegar þú segir - í athugasemd nr. 31 - að Soffía sé að brigsla þér og Jóni Baldri um að vera með skerta heyrn og athyglisbrest. Hvernig í ósköpunum geturðu lesið slíkt út úr prúðmannlegum orðum Soffíu? Málefnaleg gagnrýni? Ekki get ég séð það.

Þú ert ævinlega velkomin hingað með athugasemdir, gagnrýni og skoðanir, Þórkatla. En ég bið þig lengst allra orða að vera kurteis, hætta persónulegu skítkasti, útúrsnúningum, að gera mér eða öðrum upp skoðanir, rembast við að lesa eitthvað út úr orðum fólks sem það gefur ekki einu sinni í skyn, ráðast á fólk með offorsi og vera með eilífan orðhengilshátt. Fyrir utan leiðindin sem af slíku hljótast er slíkt þér og málflutningi þínum ekki til framdráttar.

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.7.2009 kl. 22:41

44

 

Lára Hanna, af hverju skrifar þú ekki álíka vænan pistil til Jóns Baldurs Lorange og þú gerir til mín nú, hann er á sömu skoðun og ég í þessu máli?

Jú þú tókst U-beygju í Iceavemálinu, það vita allir sem að eru læsir. Þú sagðir um daginn í bloggfærslu þinni að sem að ríkisstjórnin væri að gera,væri það eina rétta sem að hægt væri að gera í Icesavemálinu. Hálfum mánuði áður varstu á annarri skoðun.

Það voru fleiri sem að nefndu Egil Helgason í þessu sambandi, ekki eingunis ég. Og svo bíð ég í ofvæni eftir því að þú bloggir um fylgi VG við aðildarviðræður að ESB sem að þú hefur ekki gert. Hefur kannski ekki tíma til. En ef að sú bloggfærsla kemur, skal ég ekki kommentera á hana.

P.S. Lára Hanna, ég bað Þóru Arnórsdóttur afsökunar hér á blogginu þínu!!

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 23:18

45

Lára Hanna, hvers vegna biður þú þá ekki Magnús Geir Eyjólfsson að læra mannasiði. Það er kannski allt í lagi úthúða öðru fólki og tala um rassskellingar, ef það er sammála þér. Mér fyndist að þú ættir að vera sjálfri samkvæm og benda Magnúsi Geir á að læra mannasiði.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 23:27

46 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

 

Þessi Þórkötlukona er bara alveg að fara á samskeytunum.

Það hefur færst mikið í aukana að flólk bloggi frá sér lífsleiðan inni á annarra manna bloggum.

Sem er í sjálfu sér í lagi ef síðueigandi sér ekkert athugavert við það.

En mikið rosalega er þetta myndband lýsandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Algjörir kjánar með glataðan málstað.

Jamm og já.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.7.2009 kl. 23:38

47 Smámynd: AK-72

 

Þórkatla, munurinn á því sem Jón setur yfirleitt fram og þú setur fram, er að hann virðist reyna að halda sig við að vera málefnalegur en þú dettur í skotgrafirnar. Hugleiddu þetta svar frá Láru áður en þú tjáir þig meir og líttu í eigin barm um hvort hún sé ekki að bera fram réttmæta gagnrýni. Þetta lítur allavega svona út miðað við athugasemdirnar þér.

Nú hef ég ekki minni né nenni endilega að setja mig inn í hvað Lára hefur sagt um IceSave né hvort hún haif tekið U-beygju eður ei, en ég veit það allavega persónulega að maður er búinn að svefilast til og frá með þessu samningi og manni heyrist að flestir í kringum mann séu þannig.Því miður er ákveðinn hluti sem ákvað strax að vera á móti líkt og formaður Sjálfstæðisflokksins og aðrir,eingöngu að því til að lýðskruma og ná sér í vinsældir út á afstöðu sína í þeim eina tilgangi til að ná völdum aftur. Er það ábyrgt? Nei. Er það réttlætanlegt? Nei. Er það eitthvað sem við viljum horfa upp á að gerist? Aldrei, enda ekki séns að maður taki þátt í samfélagi stjórnuðu af Sjálfstæðisflokknum, FL-okknum sem iðrast einskis.

Hvað varðar Icesave, það er nefnilega ekkert einfalt mál, þetta er ekkert sem hægt er að vera með eða á móti líkt og fótboltaleik á leikskólavellinum við Austurvöll, þetta er einfaldlega mál þar sem maður vonar að niðurstaðan verði sú sem skaðar minna. Það er ekki séns að við getum komist undan því að semja um þetta, við verðum að semja og við verðum að sýna að við séum þjóð sem ber ábyrgð en spurningin er: hvernig lágmörkum við skaðann? Í raun má líkja þessu við tapaða orustu í stríði, við getum barist til síðasta manns í vonlausri stöðu en þá er mögulegt að allt glatist eða við getum hörfað undan, reynt að endurskipuleggja okkur og halda áfram baráttunni á vígvelli að okkar vali.  Munum við tapa það miklu á undanhaldinu að stríðið sé algjörlega tapað? hver veit? Aðeins afleiðingar ákvörðuninnar í tímans rás getur sagt okkur það. Viskan er þó alltaf sú sama þegar kemur að stjórnmálum og stríði : þú þarft að vita hvenær er skynsamlegra að berjast áfram á vígvöllinum og hvenær er betra að hörfa.

AK-72, 24.7.2009 kl. 23:47

48

 

Lára Hanna, þér finnst þetta málfar Jennýjar Önnu Baldursdóttur hér að ofan afskaplega kurteisilslegt eða hvað?  Hver er með dylgjur nú? Dylgjar um mína geðheilsu og mina lífsfyllingu, þ.e.a.s. mitt einkalí!

 Ef maður er ekki sammála ykkur vinstri mönnum er maður sem sagt að fara yfir um á geði eða að farast úr llífsleiða.

Hver er persónulegar árásir hér nú og dylgjur. Heitir hún ekki Jenný Anna Baldursdóttir?

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 23:53

49

 

...dylgjur  um mitt einkalíf!..... átti þetta að vera.

Hver er með persónulegar ................

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2009 kl. 23:57

50 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

 

Þórkatla: Ég var ekkert að hugsa um þitt einkalíf. 

Biðst afsökunar, hélt að þú værir að dunda við þessi skrif í frítímanum.

Svo biðst ég líka afsökunar á samskeytakenningunni.

Fannst þú bara svo æst eitthvað.

Algjörlega mín mistök.

Lofa að gera aldrei aftur, skammast mín og lýt í gras.Halo

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2009 kl. 00:04

51

 

Heart Kærar kveðjur Jenný mín. Er hérna í rólegheitum í tölvunni, því að sjónvarpið er svo lélegt. Vona að þú hafir það sem allra best og góða nótt. Sleeping

P.s ef að ég er æst þá hef lært þá list að kyrra hugann. Margar góðar bækur til um þau mál.

Skyldi virkilega enginn geta gert athugasemd við þetta sem að ég segi hér núna. Mikið yrði ég þá hissa. Gasp

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 00:20

52 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

 

 Jahérna það er aldeilis fjör á blogginu hjá þér Lára Hanna!    Það breytir því samt ekki að málefnaleg rökþurrð er algjör hjá nýja foringjanum,  enda hefur hann ekkert fram að færa um bættan og betri Icesave samning, og það veit Bjarni Benediktsson,  þessvegna verður honum fótaskortur á tungunni, og þessvegna vefst honum tunga um tönn, aftur og aftur.  En formaðurinn BB veit líka,  að í Flokknum hans fylgir hjörðin formanni sínum í blindni,  eins og hverjum  öðrum forystusauð, sem á undan honum hafa gengið.  Sama hvort hann jarmar til góðs eða ills.  - Eins og sjá má í sumum athugasemdum hér fyrir ofan. -  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 25.7.2009 kl. 00:29

53

 

Lára Hanna Einarsdóttir,

Hér er svar mitt við bloggfærslu minni sem að þú vitnar í hér að ofan frá 11.06.09:

"Lára Hanna: Ef að þú hefur ekki verið að tala um RÚV, þá hef ég misskilið þig og biðst velvirðingar á því. Mér fannst það svolítið ruglandi hvað þú segir þarna í lokin, ýmist RÚV  eða Stöð 2, en sjálfsagt er það bara ég sem að orðin rugluð á ósköpunum, það kemur víst fyrir besta fólk.

Í öðru lagi: Minntist ég ekki einu orði á handboltaleik.

Í þriðja lagi: Hældi ég þér Þóra Arnórsdóttir fyrir gott viðtal við Evu Joly, svo að það sé alveg á hreinu.

Í fjórða lagi: Stend ég við það að viðtal Þóru við Steingrím og Sigmund var alveg með eindæmum, þó að það komi þessu máli ekki beint við."

 

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 00:40

54 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já Jón Baldur, það er alltaf svo gaman að nota hugarflugið til að spinna orðavefi aftan við annara mál og hafa það einkar "frjálst í sniðinu"!

Það skemmir svo væntanlega ekki fyrir að ljóngáfuð og tungulipur snót eins og hún Þ. skuli kætast við það og hrósa kalli fyrir!

Öllu verra er hins vegar að gera slíkt án minnsta vits og hvað þá ábyrgðar, en það verður bara að vera þitt einkamál, mér er bara skemmt yfir því sem Skrattin ég væri!

En þessi magnús Geir Eyjólfsson yrði áreiðanlega bara ánægður að fá skömm í hattin frá Láru Hönnu, það yrðu líka margur annar karlkyns, sem fátt myndi gleðja meir en að hún sýndi þeim athygli, nema hvað að hann er bara ekki á svæðinu!

Annars má bara bæta þessu við.

Þegar skynsöm skortir rök,

skoðanir að tjá á blaði.

Fjári oft í fíflsins vök,

falla menn og það með hraði!

Magnús Geir Guðmundsson, 25.7.2009 kl. 02:13

55 Smámynd: Heiða B. Heiðars

 

Þórkötlu leiðist.... eigum við ekki að finna eitthvað skemmtilegt fyrir hana að gera??  Og nú segir hún örugglega að ég sé ómalefnaleg....sem væri rétt hjá henni. EN hún er bara komin svo langt út fyrir efnið að það hlýtur að teljast í lagi að ég fari líka þangað :)

Heiða B. Heiðars, 25.7.2009 kl. 12:07

56

Mér finnst þetta vera farið að nálgast persónuofsóknir. Heiða hvað veist þú um mitt einkalíf? Hef ég vaðið inn á þitt einkalíf eða einkalíf Láru Hönnu Einarsdóttur? Nei Heiða mín mér leiðist ekki nokkurn skapaðan hlut, þetta kallast dylgjur.

Þórkatla snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 12:30

57

 

Þar sem að umræðan hér á þessu athugsemdabloggi er farin meira og minna að snúast um mitt sálarástand og einkalíf í stað pólitískrar umræðu vil ég koma eftirfarandi á framfæri:

Ég tel að ég sé búin að svara fyrir mig nægjanlega, hvað varðar pólitískan vettvang þessa máls. Eftir stendur að nú er farið að ýja að mínu sálarástandi og einkalífi hér í athugasemdabloggi.

Því vil ég segja eftirfarandi: Ég og sonur minn búum hér saman. Hann er 24 ára í dag. Sonur minn varð fyrir 8 ára samfelldu einelti í skóla, andlegu og líkamlegu. Eftir stendur að hann er 75% öryrki í dag. Nei mér leiðist ekki, því að ég berst fyrir réttindum hans dag og nótt. Ég er búin að gera það í 15 ár og er ekki hætt. Ég þakka fyrir að hann er á lífi í dag og ég krefst þess að þið hættið að berja á mínu einkalífi, þó að það væri nú ekki nema fyrir tillitsemi við son minn.

Þrátt fyrir allt hef ég leyfi til þess að hafa mínar skoðanir á pólitískum vettvangi.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 12:57

58 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

 

Þókatla: Leiðinlegt að heyra með son þinn og ég sendi ykkur baráttukveðjur.

Þú fórst út í persónulegt skítkast við Láru Hönnu og við því var ég að bregðast.

Ekkert að því að ræða um pólitík, vera ósammála en endilega sleppa skítkasti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2009 kl. 14:00

59

Það var ég sem að varð fyrir persónulegu skítkasti, slepptu öllum þykjustu baráttukveðjum. Bendi þér á bloggið mitt http://www.heilsa.blog.is þar sem að kemur fram hvernig Lára Hanna er sjálf með persónulegt skítkast. Láttu mig og son minn síðan í friði!! Er það til of mikils mælst?

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 14:38

60

 

Jenný vonandi tekur þú mark á þessari ábendingu minni. Það er til nokkuð sem að heitir friðhelgi einkalífs.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 14:51

61 Smámynd: Valsól

 

Þórkatla, Jón Sigurðsson fyrrverandi heilbrigðisráðherra pantaði skýrslu um öryrkja frá Tryggva Þór Herbertssyni í kjólfar stríðs Davíðs Oddssonar og Sjálfstæðisflokksins við öryrkja. Þetta var í tíð stjórnar Sjálfstæðis og Framsóknarflokks.

Ég las þessa skýrslu og af því að ég þekki málefni öryrkja mjög vel, þá fékk ég bara ógeð og varð reiðari og reiðari eftir því sem ég las lengra. Þetta lagði svo ríkisstjórn Sjálfstæðis og Framsóknarflokks fram sem sýna sýn á málefni öryrkja á íslandi.

Tryggingastofnun sá sig knúna til að gefa út skýrslu skömmu seinna, skrifaða af Stefáni Ólafssyni, og mér fanst það ekkert skrýtið. Þar kom fram afstaða TR, Ég las þá skýrslu líka og það var eins og þar væri verið aðfjalla um eitthvert allt annað land en það sem TryggviÞór fjallaði um í sinni skýrslu.

Þórkatla, ég skil ekki hvernig þú getur stutt flokk sem og hægrimenn yfir höfuð á sama tíma og þú segist vera baráttukona fyrir öryrkja. Þú ert í flokki sem hefur þá trú að hver eigi að hugsa um sig, og að séra Jón eigi ekki að þurfa borga fyrir jón út í bæ hvort sem hann er öryrki eða ekki.

Í mínum huga er Sjálfstæðisflokkurinn ekkert anað en sérhagsmunasamband manna úr embættismannakerfinu og viðskiptalífinu, um það hvernig örugglega megi skipta köku þjóðarinnar á þann hátt að sem mest af kökunni lendi hjá þeim. Þetta lið er ekki að hugsa um okkar minnstu bræður og systur, ég held að það hafi komið alveg nógu vel í ljós á síðustu árum með öryrkjadómnum og öðru tilfallandi.

Valsól, 26.7.2009 kl. 08:57

62

 

Valsól, ég er ekki Sjálfstæðismanneskja, en það er Árni Páll sem að hefur komið fram í sjónvarpi nú hvað eftir annað og sagt að það þurfi að fylgja eftir meintu bótasvindli þeirrra sem að þiggja bætur frá Tryggingarstofnun og þeirra sem að eru á atvinnuleysisbótum.

Ef að þú hefur fylgst með fréttum undanfarið, ættir þú að vita þetta.

Sem betur fer er ég ekki pólitískt litblind og tek afstöðu til málefna en fer ekki eftir flokkslínum. Ég viðurkenni að ég kaus Samfylkinguna í síðustu kosningum og hef sjaldan séð eftir öðrum eins gjörningi.

Ríkisstjórn VG og Samfylkingar eru nú að leggja bifreiðagjöld á öryrkja, nokkuð sem að þeir hafa ekki þurft að borga í langan tíma. En þangað skal nú leita til að borga upp í sukk útrásarvíkinga, því að þangað má greinilega ekki leita peninganna, enda hefur Baugur hingað til stutt dyggilega við kosningasjóða Samfylkingarinnar.

Nei, ég get ekki stutt ríkisstjórn sem að svíkur kjósendur sína bak og fyrir.

Að við nefnum nú ekki svik VG við kjósendur sem að vissu ekki að þeir væru að kjósa um aðildarviðræður að ESB. Eru ekki reyndar ýmsir að segja sig úr þessum flokki nú............?

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 12:57

63

 

Valsól, þú segir í þinni athugsemd hér að ofan:

"Þú ert í flokki sem hefur þá trú að hver eigi að hugsa um sig, og að séra Jón eigi ekki að þurfa borga fyrir jón út í bæ hvort sem hann er öryrki eða ekki." (leturbreyting mín)

Valsól mín, ég er ekki í neinum flokki. Ég er hvergi flokksbundin svo að það sé nú á hreinu.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 13:06

64 Smámynd: Óskar Þorkelsson

 

Valsól mín, ég er ekki í neinum flokki. Ég er hvergi flokksbundin svo að það sé nú á hreinu.

en þú talar eins og innmúraður sjálfstektarmaður.. svo hverju á maður að trúa ?

Óskar Þorkelsson, 27.7.2009 kl. 01:45

65 Smámynd: DoctorE

Ég get ekki að því gert en í hvert skiptið sem ég asnast til að horfa á eitthvað frá alþingi, þá finnst mér að ég sé að horfa á mynd um heilalausa geðsjúklinga...

DoctorE, 27.7.2009 kl. 10:42

66 Smámynd: Baldur Fjölnisson

... heilaþvegna og langkeypta rugludalla.

 

Og þetta er síðan það sem að syni mínum var boðið upp á umrædda helgi...................

Eigum við einnig að borga tveggja milljarða króna lögfræðikostnað Breta? - Mótmæli óskast.

Erum við sem sagt í leiðinni að borga tveggja milljarða króna lögfræðikostnað Breta ofan á ríkisábyrgðir vegna IceSave? Við eigum að semja upp á nýtt, og láta þjóðarræningjana borga upp í IceSave - innistæðutryggingarnar. Núverandi samningur, sem gerir ráð fyrir því, að við almenningur eigum að borga sukkið og svínaríið hjá Sigurjóni Þ. Árnasyni, er handónýtur.

Ég er sammála Þórkötlu, sem gagnrýnir viðsnúning Láru Hönnu í tengslum við IceSave - samninginn, og einnig þeim lið sem snýr að því að Lára Hanna klippti viðtalið við Bjarna Ben., formann Sjálfstæðisflokksins, til, en viðtalið er hægt að finna hér, og lætur hann endurtaka sömu setninguna tvisvar, sum sé tekur hann fyrir.

Mér finnst þessi tiltekna færsla Láru Hönnu, sem má finna hér, algjörlega ómálefnanleg. ,,Lára Hanna, finnst þér sem sagt allt í lagi að skattpína þjóðina og samþykkja IceSave - samninginn, sem felur í sér afsal á fullveldi Íslands?

Eins og ég sagði áðan, og ég meina það, að við eigum að semja upp á nýtt, og láta þjóðarræningjana borga upp í IceSave - innistæðutryggingarnar. En það er þér greinilega á móti skapi, er það ekki, Lára Hanna?"


mbl.isEkki minnst á lögfræðikostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Noh..er bara verið að hjálpa mömmu sinni :) Svona mömmustrákar er svoooooo krúttlegir

Heiða B. Heiðars, 25.7.2009 kl. 12:08

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góður mömmudrengur.  Æi dúlludúskurinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2009 kl. 12:46

3

Hvurslags sálarlíf er þetta eiginlega?  Að þið skuluð ekki skammast ykkar þið tvær. Eruð þið fullorðnar manneskjur eða stelpur á gelgjunni?Ég á hreinlega ekki til orð Jesús minn!!!!!!!!!!!!

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 17:51


Einelti á moggabloggi?

Af gefnu tilefni er ég að velta fyrir mér hvort að tíðkist einelti hér á moggabloggi? Mun fjalla ítarlegar um þetta síðar í dag.

Hverjir eru skotmörk Jóhönnu Sig . á Íslandi í dag?

Þetta er einfaldlega ríkisstjórn bankakerfisins, þar sem að útrásarævintýramenn fá að leika lausum hala ennþá, og munu fá að gera það um ókomna tíð.

Við hin borgum brúsann. Þetta er varla mjög flókið. Var það ekki Baugur sem að fjármagnaði kosningabaráttu Samfylkingar hér um árið og það fæst nú varla neitt gefins þar á bæ?

Öryrkjar, atvinnulausir, fólk á lágum tekjum, þetta eru skotmörk ríkisstjórnarinnar. Bótasvindl er jú víst mál málanna.

En hvernig er með skattasvindl útrásarvíkinganna og fjárglæframannanna sem að komu Íslandi á hausinn? Þau fóru nú ekki alveg fram hjá manni í fréttum gærkvöldsins á Stöð 2? Á ekkert að gera í því?

Ég hef varla nokkurn tímann séð nokkra manneskju svíkja sinn svokallaða málstað á eins stuttum tíma og Jóhanna Sigurðardóttir gerir nú.


mbl.is Vilja hærra frítekjumark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hverju börðust afi minn og amma, pabbi minn og mamma? Hvers vegna berjumst við ekki fyrir sjálfstæði okkar á opinberum vettvangi?

"Vonast er til að stjórn AGS geti tekið málefni Íslands til endurskoðunar í lok ágúst ..........". Greiðsla númer 2 frá AGS ekki enn komin og til stóð að hún kæmi í febrúar sl.

Við, já við þjóðin, eigum að bíða fram í lok ágúst, byrjun september, til þess að fá að vita hvort að okkur verði veitt sú miskunn að fá þessa greiðslu.

Norðurlandaþjóðirnar, "vinaþjóðir" okkar taka í sama streng, veita okkur ekki krónu af því lánsfé sem að þær voru búnar að lofa okkur, fyrr en AGS er búinn að miskunna sig yfir okkur, með greiðslu númer 2 af láni sem átti að greiðast í febrúar.

Það skyldi þó ekki vera að AGS sjái sér nú leik á borði til að knésetja þessa þjóð ærlega, þeir eru víst þekktir fyrir það, vitandi það að það er bullandi ágreiningur um Icesave bæði hjá þingi og þjóð.

AGS mun aldrei veita okkur lán númer 2 fyrr en við samþykkjum Icesamninginn, svo einfalt er það. Við erum ekki lengur sjálfstæð þjóð.

Auðlindirnar eru víst einhvers virði ekki satt og þess virði að krækja í þær eða hvað?

Icesamningurinn og AGS lánið er hengingarólin sem að mun verða fest við þessa þjóð næstu áratugina. Almenningur skal fá að borga brúsann fyrir subbuskap útrásarvíkinga sem að fengu prókúruhafarétt á bankareikninga okkar Íslendinga um ókomna framtíð.

Á meðan hrynur verðgildi krónunnar, fleiri fyrirtæki fara á hausinn, atvinnuleysi eykst, öll almenn þjónusta við þegna þessa lands snarminnkar, og á meðan fá útrásarvíkingar að leika lausum hala. Allt í boði ríkisstjórnarinnar sem að sér enga ástæðu til að sækja peningana til þessara manna. Og já, það eru komnir 10 mánuðir frá hruni.

Í öllum öðrum lýðræðisríkjum sem þvílíkt hefði gerst, væri fyrir löngu búið að stinga þessum mönnum bak við lás og slá.

Síðan höfum við forsætisráðherra sem að lætur ekki sjá sig í útlöndum til að rétta af málstað landsins á alþjóðavettvangi. Hún kann að vísu ekki ensku en það er engin skömm að því að hafa túlk með sér. Þjóðarleiðtogar víða um heim hafa gert slíkt hið sama.

Fólk flýr hér nú land, og að fer fram sem horfir er þetta bara byrjunin. Mannlíf hér og atvinnulíf verður varla svipur hjá sjón.

Það væri fróðlegt að fá að kíkja yfir öxl himnaföðursins þegar að fram líða stundir, vonandi ekki alveg strax, og fá að vita hvort að það leynist eitthvert lífsmark með þessari þjóð, Íslandi, já kannski eftir 30 - 40 ár eða svo?


mbl.is Vonast eftir láni í lok ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

12 ráðherrar fyrir 330 000 manna þjóð?

Var ekki ráðherrum fjölgað um 2 eftir síðustu kosningar eftir yfirlýsingar þess efnis fyrir kosningar að fækka þyrfti ráðherrum og spara í stjórnsýslunni?

Hefði ekki mátt verja þessum peningum til löggæslumála? Að það skuli vera 12 ráðherrar fyrir 330 000 manna þjóð með öllum þeim tilkostnaði sem að fylgir hverju ráðuneyti, er auðvitað alveg óskiljanlegt.


mbl.is „Algjör misskilningur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ólína að berjast fyrir lítilmagnann og þolendur eineltis?

Það eru alveg furðuleg vinnubrögð sem að Ólína Þorvarðardóttir viðhefur á sínu athugasemdabloggi.

Í kjölfar umræðunnar á Alþingi um einelti á vinnustað svaraði Ólína fyrir sig með eftirfarandi bloggi og ekkert nema gott eitt um það að segja.

Blogg Ólínu er nú komið inn á http://www.eyjan.is með 11 athugasemdum. Ég las þetta blogg fyrir um 2 dögum síðan eða svo og þá voru nú fjölda annarra athugasemda þar inni og ég man ekki eftir að nein þeirra væri ekki þess eðlis að hún væri ekki birtingarhæf.

Ég setti smá athugasemd þar inn, minnir að það hafi verið síðasta athugasemdin áður en að Ólína sagðist vera hætt og farin í bili, sem að var stutt og sárasakleysisleg um mína persónulegu upplífun af einelti og að einelti ætti aldrei að líðast.

Af einhverjum ástæðum þótti Ólínu þessa athugasemd mín ekki birtingarhæf og ákvað að hreinsa hana út ásamt fjölda annarra athugasemda, sem að voru kannski ekki alveg í halelújahóp Ólínu. Hún hélt þó inni athugasemd Þórs Saari enda var blogginu beint til hans.

Mér er persónulega alveg nákvæmlega sama hvort að mín athugasemd hafi birst þarna eður ei, enda var hún mjög stutt eins og ég sagði áðan, og mjög almennt orðuð.

Mér er hins vegar spurn hvað þingmaður er að gera inn á þingi sem að hendir út mjög almennt orðaðri athugasemd um einelti, sem að var einhvernveginn á þann veg að einelti ætti aldrei nokkurntímann að líðast, alveg sama í hvaða mynd það birtist?

Er hún ekki að berjast fyrir lítilmagnann eða er það kannski bara alger misskilningur?

 

Svolítil leiðrétting til Þórs Saari ... annars er ég farin á útkallsæfingu ...

... upp í Borgarfjörð, ætla að liggja þar í tjaldi í nótt og ekki að hugsa meira um pólitík þessa helgina. Ice-save getur beðið betri tíma.

En ég sá á visi.is að Þór Saari réðist á mig heiftúðlega með ósannindum um að ég hefði hlegið að eineltistali Birgittu Jónsdóttur í þinginu á föstudag og verið með framíköll. Lágt þykir mér maðurinn leggjast í þessum málatilbúnaði, enda fer hann með hrein ósannindi.

Hér er tengillinn á ræðu Birgittu - og dæmi nú hver um sig um það sem þarna fór fram - ég ætla ekki að svara því frekar.

En .. nú streyma félagar Björgunarhundasveitar Íslands upp í Flókadal þar sem útkallsæfing mun fara fram eldsnemma í fyrramálið. Sjálf er ég ekki með fullþjálfaðan hund, þannig að hann bíður þess að fá að spreyta sig síðar.

Ég verð "týnd" milli þúfna eins og fleiri. Svo verður grillað og unghundarnir æfðir.

"Sjáumst" síðar  Wink

 

P


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann

 

Þetta er semsagt álíka satt og fullyrðingar Birgittu um að þingmenn VG hafi verið dregnir fram á gangi í atkvæðagreiðslunni um ESB. Þar sem Jóhanna var að lesa yfir þeim.

Það er greinilegt að Birgitta gleymir því að almenningur á Íslandi horfði á atkvæðagreiðsluna um ESB, og það var ekki að sjá að neinn þingmaður hafi verið kallaður fram til þess að láta lesa yfir sér. Enda hefði slíkt sést á þeim myndavélum sem voru niður á Alþingi þegar ESB atkvæðagreiðslan fór fram.

Jón Frímann, 25.7.2009 kl. 20:13

2 Smámynd: Gísli Baldvinsson

Þessi flökkusaga fer víða og enginn nema Lilja Mósesdóttir getur borið hana til baka.

Gísli Baldvinsson, 25.7.2009 kl. 20:32

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Góður einstaklingur sagði nýverið:

Eitt af því sem gerir einelti flókið er að þeir sem taka þátt í því gera sér oft ekki grein fyrir því sjálfir. Þeir taka óbeinan þátt með þögninni, með því að fylgja kvalaranum að málum og láta sér líðan og afdrif fórnarlambsins í léttu rúmi liggja. Þetta er jafnvel gert í nafni einhvers málstaðar - því vitanlega þarf réttlætingar fyrir illverkum. Það þekkjum við frá tímum Gyðingaofsóknanna, McCarty-ismans í Bandaríkjunum, galdraofsóknanna á 17. öld, og þannig mætti lengi telja. Einelti getur að sjálfsögðu beinst gegn hópi fólks og er oft hagsmunadrifið.

Þess vegna viðgengst einelti víða í samfélaginu - víðar en margan grunar. Við sjáum stjórnmálamenn sem lagðir eru í einelti af flokksfélögum og fjölmiðlum ár eftir ár. Sömuleiðis opinbera embættismenn og poppstjörnur.  Einelti á sér oft flóknar félagslegar orsakir sem full ástæða er til að taka alvarlega og reyna að átta sig á. Það getur verið vafið inn í einhverskonar "ágreining" eða "skoðanamun" sem er oft ekkert annað en fyrirsláttur til þess að geta sótt að einstaklingum.

Og bætti við:

Einelti spyr hvorki um stétt né stöðu manna, það getur birst gagnvart hverjum sem er, hvenær sem er.

Einelti birtist ekki endilega gagnvart þeim sem minna mega sín heldur líka - og jafl oft - gagnvart þeim sem gerendunum stafar ógn af á einhvern hátt. Þannig getur einelti orðið aðferð til þess að ryðja einhverjum úr vegi

Friðrik Þór Guðmundsson, 25.7.2009 kl. 23:44

4 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

 

Jón Frímann "..þingmenn VG hafi verið dregnir fram á gangi í atkvæðagreiðslunni um ESB..."

NEI og aftur NEI Jón Frímann, en ég veit þú ert alltaf með útúrsnúninga, en hið rétta er í þessu sambandi, að menn voru dregnir fram daganna fyrir atkvæðagreiðslunni um ESB Jón Frímann, en sjáðu til öll þjóðin veit um þetta,  svo og einnig um málið sem hann Ásmundur Einar Daðason vakti athygli á, en hvernig stendur á því að öll þjóðin veit um þetta allt saman, en ekki þú (Jón Frímann)? 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 26.7.2009 kl. 11:01

5 Smámynd: Þór Saari

Sæl Ólína, rakst á þig í heimsókn hjá mér, takk fyrir innlitið, þér hefur verið sinnt.Hvað varðar þetta mál þá vita aðrir þingmenn og Ólína sjálf mæta vel hvað hún sagði í þingsal og einnig að frammíköll nást að jafnaði ekki nema mjög takmarkað á upptökutæki þingsins.  Verið getur að aðferðir Jóhönnu og Björgvins G. hafi farið alveg fram hjá þér, en það er nóg af fólki sem getur sett þig inn í þetta mál ef þú villt vita meira um það.  Að afskrifa umræðu um málið og reyna að þagga það niður frekar en að leita svara er ekki rétta leiðin, ekki síst þegar það er haft í huga að það var einmitt þú Ólína, og hafðu þökk fyrir, sem skrifaðir þessar frábæru línur hér að ofan um einelti sem Friðrik Þór vísar til. Með bestu kveðju,

Þór Saari

Þór Saari, 26.7.2009 kl. 12:31

6 Smámynd: Hilmar Hafsteinsson

Sæl Ólína. Eru björgunarsveitartíkur ekki leyfðar í Björgunarhundasveitinni? Styður þú kynjamisrétti í björgunarsveitinni?

Hilmar Hafsteinsson, 26.7.2009 kl. 13:19

7 Smámynd: Páll Blöndal

Hvað endemis kjaftæði er þetta um einelti á vinnustaðnum Alþingi.
Veit þetta fólk ekki að þegar það býður sig fram til starfa á þessum vinnustað að þarna er ekki um verndaðan vinnustað að ræða.
Ef þið í Borgarahreyfingunni þolið ekki að vera í skotlínunni þá eigið þið að fá ykkur vinnu við eitthvað annað.
Allt tal um einelti er bara kjánalegt væl.

Páll Blöndal, 26.7.2009 kl. 15:22

8 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þetta eru nú meiri vælukjóarnir þessir Borgarar... þeir ættu kannski að fara í minna krefjandi störf.

Jón Ingi Cæsarsson, 26.7.2009 kl. 16:22

9 Smámynd: Ólína Þorvarðardóttir

 

Ég þakka Friðriki Þór fyrir að vekja athygli á fyrri skrifum mínum og skoðunum um einelti. Þetta er einmitt það sem ég vildi sagt hafa um hugtakið "einelti" - og ég hvet fólk til þess að hugleiða það sem í þessum orðum felst.

Þór Saari - þú ferð með rangt mál þegar þú segir að ég hafi hlegið að Birgittu og gert hróp að henni í umrætt sinn. Það eru einfaldlega ósannindi. Og það þýðir ekkert fyrir þig að ætla að blanda Jóhönnu eða Björgvin G inn í það mál, eða þæfa það með útúrsnúningum. Við erum hér ekki að tala um tilefnið að orðum Birgittu, heldur viðbrögðin í þingsalnum, þar sem þú blandar mér ranglega inn í söguna. Ég koma þarna hvergi nærri - og það veist þú.

Þú verður auðvitað að eiga það við sjálfan þig hvernig þú kýst að svara gagnrýni sem borin er fram á þig og þína - en þessi aðferð er ekki til fyrirmyndar. Hún hlýtur að valda fleirum en mér vonbrigðum.

Ólína Þorvarðardóttir, 26.7.2009 kl. 17:45

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

,,Selja land, grafa bein."

Jóhannes Ragnarsson, 26.7.2009 kl. 19:27

11 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

 

Þetta tal um einelti og um þrýsting á VG þingmenn er augljóslega léleg tilraun Borgarahreyfingarinnar til að breiða yfir það að þrír flokksmenn í þessum nýja flokki greiddu ekki atkvæði eftir eigin sannfæringu í ESB atkvæðagreiðslunni.

Þetta siðbótarafl byrjar ekki nægilega vel. Ég vil taka fram að mér fannst ýmislegt í málflutningi þeiira fyrir kosningar vera bitastætt og ég hef orðið fyrir hroðalegum vonbrigðum með þau.

Jón Halldór Guðmundsson, 28.7.2009 kl. 19:28


Fer hraðspólun Pepsímarkanna í kennslumyndband KSÍ? FH -Breiðablik.

Það leynir sér ekki að það er kominn pirringur í ýmsa knattspyrnuaðdáendur hér á Íslandi. Fylgismenn Íslandsmeistara FH eru að sjálfsögðu ánægðir með sitt lið.

Það er samt sem áður svolítið skringileg afstaða sem að maður heyrir hér og þar er, að það sé meira og minna FH-ingum að kenna að mótið skuli vera svona leiðinlegt, það sé engin spenna lengur.

Það er alveg nýtt fyrir mér að þeir sem að skari fram úr á einhverju sviði, eigi að vera sökudólgurunn vegna hæfnisleysi annarra.

Einn af þeim sem að hefur fallið í þessa gryfju er Magnús Gylfason sem að er einn meðlima þáttarins Pepsímarkanna á Stöð 2 Sport.

Ég horfi reglulega á þennan þátt enda forfallin knattspyrnuáhugakona. Það er leiðinlegt að sjá hvernig Magnús fellur í þessa gryfju. Í sama þætti fyrir um 2 vikum síðan svaraði Tómas Ingi, Magnúsi á þann hátt að FH væri að spila skemmtilegan fótbolta og það væri nú ekki síst það sem að skipti máli.

Mér finnst Tómas Ingi alltaf koma vel fyrir og sakna hans þegar að hann er ekki.

Steininn tók svo úr í gærkvöldi í Pepsímörkum, þegar að valið var úr atvik og/eða sókn umferðarinnar sem að var ein sókn FH-inganna.

Magnús taldi að þessí sókn væri kennslubókardæmi um hvernig sókn ætti að vera, en Tómas sagði að þeir félagar "hefðu valið að hraðspóla hana" Mig langar að vita hver valdi þarna hraðspólun, Magnús eða Tómas Ingi?

Frábær sókn sem að ég hefði svo sannarlega kosið að sjá sýnt hægt, frekar en hratt.

Fer hraðspólunin sem sagt í kennslumyndband KSÍ?

Þessi þáttur er endursýndur á Stöð 2 Sport 22:55 í kvöld.

 

Umfjöllun: FH nálgast titilinn eftir sigur á Blikum
Guðlaugur Valgeirsson    Sunnudagur, 26. júlí 2009   

FH unnu í dag Breiðablik með tveimur mörkum gegn einu. Atli Guðnason var valinn maður leiksins en hann lagði upp bæði mörk liðsins og var mjög hættulegur. FH núna í 1 sæti með 37 stig en Blikar nálgast fallsæti óðfluga með 15 stig í 8 sæti.


FH og Breiðablik mættust í dag í Krikanum í ekkert sérstöku veðri, rigning og leiðindi. Fyrir leik voru FH í efsta sæti með 34 stig eftir 13 leiki á meðan Blikar voru í 8 sæti með 15 stig, en Blikar höfðu fengið á sig 8 mörk í seinustu 2 leikjum. Í lið FH-inga vantaði nokkra leikmenn meðal annars Guðmund Sævarsson, Hjört Loga Valgarðsson og Pétur Viðarsson. Í lið Blika vantaði helst Arnar Grétarsson. Guðni Páll Kristjánsson var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik í efstu deild karla hér á landi en hann byrjaði einnig inná gegn Aktobe í Kasakstan.

Fyrsta færið í leiknum kom á 3 mínútu og það fengu FH-ingar, boltinn barst fyrir markið þar sem Atli Guðnason tók hann viðstöðulaust innanfótar rétt yfir markið. Á 10 mínútu fengu FH-ingar aukaspyrnu, Matthías Vilhjálmsson tók spyrnuna, en boltinn fór yfir vegginn sem og markið. FH komust yfir á 13 mínútu, frábær sending frá Atla Guðna inn fyrir vörnina á Matthías Guðmundsson sem setti hann í fjærhornið framhjá Ingvar Kale í marki Blika, 1-0 fyrir FH. FH fengu mjög gott færi á 22 mínútu, Tryggvi Guðmundsson tók aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, gaf boltann fyrir þar sem Tommy Nielsen skaut boltanum viðstöðulaust, rétt yfir markið. Á 25 mínútu voru Blikar við það að sleppa í gegn en Guðni Páll Kristjánsson, nýliðinn í hægri bakverðinum stoppaði það með frábærri tæklingu. Aðeins 30 sekúndum síðar voru FH-ingar næstum því búnir að bæta við marki,þeir tættu í sig vörnina, Atli Guðna og Björn Daníel og að lokum kom Atli með sendingu fyrir en Matthías Guðmundsson náði ekki til knattarins.

 Á 27 mínútu keyrði Björn Daníel Sverrisson upp vinstri kantinn, gaf á Atla Guðna sem átti skot rétt framhjá en boltinn fór í varnarmann Blika. Fyrsta færi Blika kom á 30 mínútu þegar Olgeir Sigurgeirsson fékk of mikið pláss fyrir framan mark FH og lét vaða en Daði Lárusson varði vel. Á 37 mínútu fengu Blikar besta færi sitt til þessa, Kristinn Steindórsson fékk boltann við vítateigshornið og átti laust skot en erfitt sem Daði gerði vel í að verja. Á 41 mínútu klikkaði Alfreð Finnbogason algjöru dauðafæri eftir góða sendingu frá Kristni Steindórssyni. 44 mínúta og það lá mark í loftinu, Kristinn Steindórsson með enn eina sendinguna fyrir og Guðmundur Pétursson nær skoti á markið en Daði ver. Aðeins mínútu síðar, aftur sofandaháttur í vörn FH-inga sem endaði með því að Guðmundur Pétursson átti gott skot en Daði varði eins og fyrr vel í markinu. Fyrri hálfleiknum lauk svo með skoti frá FH, en Matthías Vilhjálmsson átti skot í varnarmann Blika og Ingvar Kale í markinu þurfti að taka á stóra sínum til að verja þennan bolta. FH voru betri í fyrri hálfleik en þeir voru þó heppnir að fá ekki á sig mark, því Blikar sóttu stíft að marki þeirra seinustu 10 mínúturnar en Daði Lárusson var frábær í markinu.

Seinni Hálfleikur

Blikar fengu fyrsta færið í seinni hálfleik og skoruðu úr því færi á 47 mínútu, Guðmundur Pétursson vann boltann eftir tæklingu gaf boltinn fyrir þar sem Alfreð Finnbogason var einn á auðum sjó og skoraði af miklu öryggi, 1-1 og Blikar byrja betur í seinni hálfleik. Á 52 mínútu komust FH aftur yfir, Davíð Þór Viðarsson fékk boltann rétt fyrir utan teig, gaf á Atla Guðna sem gaf inn í teig þar sem Tryggvi Guðmundsson tók boltann í fyrsta og skoraði, 2-1 fyrir FH. Á 71 mínútu skoruðu Blikar næstum því sjálfsmark, Matthías Vilhjálmsson gaf boltann fyrir af kantinum og Kári Ársælsson fyrirliði Blika skallaði í stöng sinna manna. Á 75 mínútu fengu FH aukaspyrnu sem Tryggvi Guðmunds tók, hún var stórhættuleg á nærstöngina en Ingvar Kale varði vel í markinu. Dennis Siim kom inná á 78 mínútu, en þetta var jafnframt fyrsti deildarleikur hans í sumar, hann meiddist í lengjubikarnum gegn Fylki. Árni Kristinn Gunnarsson fékk síðan rautt spjald í uppbótartíma.

Leiknum lauk með sigri FH sem eru nú komnir í 37 stig og eru með 13 stiga forskot á KR í allavega einn sólarhring. Næsti leikur FH í bikarnum í Keflavík á fimmtudaginn, hvetjum alla til að mæta. ÁFRAM FH! 


Dómari: Valgeir Valgeirsson - Fínn
Áhorfendur: 867
Maður Leiksins: Atli Guðnason
Veður: leiðinlegt, rigning á köflum og kalt. Völlurinn mjög blautur og mikið um tæklingar.

Byrjunarlið FH: Daði Lárusson, Guðni Páll Kristjánsson, Tommy Nielsen, Sverrir Garðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Davíð Þór Viðarsson, Matthías Vilhjálmsson, Tryggvi Guðmundsson (Viktor Örn Guðmundsson 87'), Matthías Guðmundsson (Atli Viðar Björnsson 70'), Alexander Söderlund (Dennis Siim 78'), Atli Guðnason.

Byrjunarlið Breiðablik: Ingvar Þór Kale, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Kári Ársælsson, Guðmann Þórisson, Árni Kristinn Gunnarsson, Olgeir Sigurgeirsson (Haukur Baldvinsson 56'), Finnur Orri Margeirsson, Guðmundur Kristjánsson, Kristinn Steindórsson (Andri Rafn Yeoman 79'), Guðmundur Pétursson, Alfreð Finnbogason.


Facebook
Twitter
Digg

Til hamingju Jóhanna Guðrún!

Þetta er nú aldeilis flott hjá þér!  Til hamingju Jóhanna Guðrún!   Björk Guðmundsdóttir hvað?

Sumir hér á Fróni þoldu víst ekki kjólinn þinn í Eurovision, þar á meðal Sverrir Stormsker, en hver þekkir hann í útlöndum .................?


mbl.is Jóhanna Guðrún á Monocle vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónlistin gleður hjartað ekki satt? Sitt lítið af hverju.

Hvað er betra en tónlist eftir eril dagsins. Eigum við ekki að reyna að hafa þetta fjölbreytt?:

http://www.youtube.com/watch?v=Hx8_mv7CzTg

http://www.youtube.com/watch?v=lO0xck7TPg4

http://www.youtube.com/watch?v=C6_1_KGRFDM

http://www.youtube.com/watch?v=MqqcqQAzqr8

http://www.youtube.com/watch?v=QbN0g8-zbdY

Hlaðborð kvöldsins, gjörið svo vel. Eftir svona tónlist hlýtur maður að sofa vel.

Svo langar mig að bæta þessari slóð við með J. du Pré, frábær sellóisti sem að lést langt um aldur fram:

http://www.youtube.com/watch?v=ib9s5LunvFI&NR=1


Þögn er sama og..............

Vinstri stjórn VG og Samfylkingar í hnotskurn, mikið vildi ég að gæti forðað mér. Hvers vegna fjalla fjölmiðlarnir ekki aðeins meira um þetta? Hafa tæpt á þessu en ekki sagt frá alvörunni í málinu.

En það er víst best að þegja sem mest, eftir útreiðina sem að ég fékk á umfjöllunarbloggi Láru Hönnu Einarsdóttur s.l. sólarhring um blogg Láru Hönnu, sem að hefur eftirfarandi titil:

http://www.larahanna.blog.is/blog/larahanna/

Sterk og ákveðin forysta Sjálfstæðisflokksins

 


mbl.is Hundruð flytjast til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Stjórnmál, lífsmáti, heilsa

Höfundur

Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Er kona á besta aldri sem hefur áhuga á öllu skemmtilegu, bókum, tónlist o.fl. o.fl.
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband