28.8.2009 | 00:23
Sorgleg kaflaskil í sögu þjóðar.
Sorglegur dagur í dag. Fyrir hverju var barist og allt það....? Sögu sjálfstæðs íslensks lýðveldis lýkur í dag. Sögu fullveldis lýkur í dag.
Ekki ætla ég að fjalla um aðdragandann að öðru leyti en því en, að það mátti ekki draga glæpamennina til ábyrgðar. Þeirra hugsun, þeirra verk, þeirra glæpur, en þeir fá klapp á öxlina frá núverandi "almætti Íslands", ég nefni engin nöfn, mér verður óglatt. En þeir sleppa.
Síðan er líka meiningin að selja auðlindirnar okkar og Óli okkar "forseti" bara að spjalla um það við mann og annan þann 15. ágúst. s.l.
Eftir þessa menn, já Óla líka, standa sundraðar fjölskyldur, glataðar eignir og einnig því miður að einhverju leyti glataður fjársjóður í þeim komandi kynslóðum sem að erfða myndu landið.
Þessar kynslóðir munu hverfa, hver á fætur annarri og eru þegar byrjaðar að gera það, því að með hverri fjölskyldu sem að flýr þetta volæði flytja að meðaltali 2-3 börn.
Sorgleg kaflaskil í sögu þjóðar í dag sem að nennti ekki að mótmæla á Austurvelli í sumar.
![]() |
Icesave-umræðu að ljúka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2009 | 15:28
Smáfuglarnir tísta að lokum.............sorry, too late, yes much too late, my friend.
Útrásarvíkingarnir komust "til valda" á Íslandi með aðstoð Davíðs Oddssonar og besta vinar aðal, Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni.
Nei, segir Hannes Hólmsteinn núna, en er þetta ekki aðeins of seint í rassinn gripið nú, ekki bara frá hendi Hannesar Hólmsteins, heldur frá mótmælendum yfirhöfuð.
Við höfðum allt sumarið til að mótmæla en núna fyrst, á degi lokaafgreiðslu málsins heyrist eitthvert smá tíst.
Við getum sjálfum okkur um kennt, hvers vegna nenntum við ekki að mótmæla fyrr? Svona smáfuglakvak á lokadegi málsins hefur ekkert að segja því miður.
Sorry, now it's too late my friend........ much too late.
![]() |
Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2009 | 09:51
Hvað þarf jarðskjálftinn að vera á háu kaliberi?
Já, hvern skal nú undra að greiðsluviljinn sé að hverfa, þegar að almenningur sér að skúrkarnir sem að stálu peningunum þeirra, eigi að sleppa?
Í Bandaríkunum hefðu þessum mönnum verið stungið bak við lás og slá vegna formlegra staðfestinga þess, að um stórkostlegt fjármálamisferli og peningaþvætti hefði átt sér stað.
Það hefði ekki tekið Bandraríkjamenn styttri tíma en 8 - 10 vikur til að framkvæma slíkt, (þ.e. að koma mönnum bak við lás og slá) enda er verið að segja frá einu slíku máli hér á netinu og/eða fréttunum þessa dagana.
Nei, engir skúrkar dæmdir hér og það á að samþykkja Icesasamninginn í dag.
Evrópulöndin og Bandaríkin eru að "síga" upp úr kreppunni en eftir stöndum við íslensk þjóð, sem að lét fjárglæframenn plata okkur og ætlar ábyggilega að láta það gerast áfram.
Eva Joly sagði að þetta væri eitt stærsta sakamál á sviði efnahagsbrota í Evrópu.
Sakamálið sem að kom íslenskri þjóð á hausinn, þar sem að hún mun vera um langa framtíð, svo framarlega sem að við almenningur köllum ekki eftir að Eva Joly komi hingað til lands og blási kjarki í þjóðina.
Ekki gerir forsætisráðherrann okkar það, svo mikið er víst.
Hvað þarf stóran jarðskjálfta svo að þjóðin vakni?
![]() |
Greiðsluviljinn að hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.8.2009 | 00:01
Nú þarf ég ekki lengur að borga leigu...........?
Var hann ekki skuldugur upp fyrir haus karlgreyið? Ágætt bara að láta sig hverfa. Fréttir af andláti hans eru stórlega ýktar, að öllum líkindum.
Númerið á bílnum sést á myndskeiðinu.
![]() |
Jackson lifandi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2009 | 13:26
"Á kaupmannsins tröppum með tárvota kinn...."
Nei, ekki er ég hagfræðingur, nei ekki er ég viðskiptafræðingur, en það þarf víst ekki margar heilafrumur til að sjá að það á ekki að draga glæpamenn Íslands, útrásarvíkingana, fyrir dóm?
Er þetta nokkuð flókið, þurfum við að skrifa margar blaðsíður um þetta? Held ekki.
Eða erindi úr ágætis kvæði eftir Nils Ferlin:
"Þú misstir á leiðinni miðann þinn,
þú mannsbarn, sem einhver sendi.
Á kaupmannsins tröppum með tárvota kinn
þú titrar með skilding í hendi."
Kvæðið heitir Mannsbarn í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar.
Síðan í lokin: Hvað skyldu margir aðstandendur detta í lukkupott Fjölskylduhjálparinnar í dag sem að getur úthlutað ókeypis 100 skólatöskum til þeirra sem að hafa ekki efni á slíkum "lúxus" í "velferðarstjórn" Jóhönnu Sig í dag?
![]() |
Fengum langmesta höggið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2009 | 12:30
Áskrift og bílar í ýmsu ástandi.
Lífið heldur áfram til hvers? Já til hvers? Sem sagt að þurfa hlusta áfram á ósköpin. S.l. fimmtudag gat Sigmundur Ernir ekki munað sáraeinfalda spurningu frá Vigdísi Hauksdóttur sem að hún þurfti að tvítaka til þess að fá einhver "svör".
Ragnheiður Ríkharðsdóttir þurfti líka að tvítaka sínar spurningar sem að áðurnefndur þingmaður virtist eiga erfitt með að meðtaka, hvað þá að svara.
Maður talar nú ekki um ósköpin þegar að Sigmundur gersamlega tryllist í lokin, missir algerlega stjórn á sér.
Fyrir nokkrum vikum síðan sagðist Sigmundur einungis hafa notað sinn eiginn bíl í kosningabaráttunni.
Sannleikurinn kom síðar í ljós: Hann eyðilagði fyrri bílinn sem að hann var með til afnota á uppsagnarfresti hjá Stöð 2 og skilaði síðan hinum síðari, sem að hann hafði til afnota í baráttunni, óökufærum.
Þetta sýnir að Sigmundur lýgur þegar að honum geðjast svo.
Forstjóri Stöðvar 2 segir að þetta komi almenningi ekki við, þetta sé á milli hans og Sigmundar. En í hvað fara mín áskriftargjöld Stöðvar 2, mig langar að fá að vita það?
![]() |
Ragnheiður: Ekki þinginu sæmandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nú, fór Eva Joly ekki fram á það um daginn að það yrði settur inn meiri peningur til rannsóknar á þessu máli öllu saman? Fór hún ekki líka fram á það að störfum varðandi þessi mál yrði fjölgað?
Þarf hún reglulega að koma hér til Íslands og vera í barnapössun á mönnum sem að svífast einskist og ætla að sjá til þess að skúrkarnir sleppi?
Það sem að Eva Joly fór fram á, fór fyrir rikisstjórn sem að samþykkti það. Hvar eru þessir peningar? Er eitthvað að? Við ætlum sem sagt að láta bjóða okkur þetta?
Útrásarvíkingar gætu sloppið létt

Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, er meðal þeirra sem eru til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og skattrannsóknarstjóra.
Fjárskortur veldur nú töfum á rannsókn á meintum efnahagsbrotum útrásarvíkinga. Skorið hefur verið niður hjá embætti skattrannsóknarstjóra á þessu ári og efnahagsbrotadeildin glímir við manneklu. Þessi frestun á rannsókn málanna getur haft í för með sér að refsing verði vægari en ella, ef til hennar kemur yfirleitt.
Við stöndum frammi fyrir því að það voru skertar fjárheimildir fyrir þetta ár sem nú er að líða. Það er staðan, segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, er í svipaðri stöðu. Starfsfólki hjá okkur hefur frá áramótum verið fækkað um þrjár stöður.
Á síðustu árum hefur það nokkuð oft komið upp að sakborningar hafa hlotið mildari dóma vegna þess að mál hafa tafist við rannsókn. Töfin hefur haft þau áhrif að sakborningar sem hefðu fengið fangelsisdóma sluppu eða dómar yfir þeim voru mildaðir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2009 | 08:14
Auglýst eftir greindarvísitölu stjórnmálamanna.
Það er eitt upp af öðru hjá þessari voluðu ríkisstjórn, ef ríkisstjórn skyldi kalla. Ég held að það hafi aldrei verið eins miklir aukvisar við völd á sama tíma og það skiptir þjóðina nú höfuðmáli að hafa almennilegt fólk við stjórnvölinn.
Nú á sem sagt að rústera fyrirtækjunum í landinu formlega með því að sniðganga íslenska vöru?. Ég fer bráðum kannski að auglýsa eftir ráðherra með aðeins hærri greindarvísitölu en 100?
![]() |
Sementsverksmiðjan gengur út október |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2009 | 21:26
Icesave, sipp og hoj og úrræði KatrínarJakobsdóttur
Alveg merkilegt að hlusta á Katrínu Jakobsdóttur nú áðan að vera að tala um að ríkisstjórnin "sæi nú til lands" með Icesavemálið og "sæu nú sömuleiðis til lands" með afkomu bankanna. Nú væri sko kominn tími til að styðja við fjölskyldur í þessu landi.
Þúsundir manna hér á landi eiga ekki fyrir mat. Viðkomandi þarf að leita til hjálparstofnana. Ekki er ég að gera lítið úr þeirri starfsemi sem að er stórkostleg. En fyrir hvað erum við að borga með sköttunum okkar?
Það á hver einstaklingur fæddur hér á byggðu bóli rétt á því að hafa i sig og á, geta haft fyrir sínum mat og borgað prívat og persónulega.
En ríkisstjórnin er of upptekin við að bjarga fjárglæfra - og glæpamönnum.
Margar fjölskyldur gátu ekki borgað fyrir námsbækur og stílabækur barna sinna í dag.
Hvað ætlar þú að gera í þessu Katrín mín?
Einhverntímann fór maður í sipp og hoj, kíló og yfir eftir góðan skóladag. Hvað gera skólabörn í dag --- gráta?
![]() |
Orðalag fremur en stór ágreiningsefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2009 | 13:11
Sjónarspil, sýndarmennska og lygar.
Það er víst að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um Icesave en meðferð málsins og þeirra, sem að því koma, kalla kannski á það, að maður fjalli um það einu sinni enn.
Með hjálp Sjálfstæðisflokks og síðan Borgarahreyfingar, sem að barðist gegn þessu hér í den, átti að koma í veg fyrir að þessi ósköp yrðu að veruleika. Já var það ekki í kosningabaráttu Þórs Saari og co.?
En nú mun þetta" óskabarn" Ríkisstjórnar Íslands verða að veruleika fljótlega eftir helgi með hjálp "dyggra"stuðningsaðila.
"Þökk" sé ofargreindum flokkum sem að sjá fram á enn meiri frama í pólitíkinni hlýði þeir járnfrúnni.
Fyrirvarar eða ekki fyrirvarar, jú, jú þetta verður allt í þessu fínasta lagi, fyrirvararnir munu halda, við látum sko ekki plata okkur........ segir utanríkisáðherra.
Við höfum forsætisráðherrra sem að heitir Jóhanna Sigurðardóttir, fjármálaráðherra sem að heitir Steingrímur J. Sigfússon og utanríkisráðherra sem að heitir Össur Skarphéðinsson.
Af einhverjum ástæðum líður mér ekki vel með þetta, undur og stórmerki
En hvernig væri að Alþingismenn afnymdu sínar föstu greiðslur til sín upp á rúmar 60 000 kr. á mánuði, fyrir það eitt að þurfa að keyra á milli staða, eða er það alveg rosalega erfitt?
Svei mér þá ef að ég kýs ekki Framsókn næst......... en þetta næst, er kannski langt framundan og það getur víst ýmislegt gerst þangað til.
![]() |
Funda um Icesave um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Stjórnmál, lífsmáti, heilsa
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar